Fréttapistill | 15. apr. 2025

Heill sé Vigdísi Finnbogadóttur

Vigdís Finnbogadóttir á afmæli í dag og fagnar 95 árum. Ég veit líka að þjóðin öll fagnar með Vigdísi á þessum tímamótum.

Vigdís sýndi og sannaði hversu mikil áhrif má hafa með því að beita mjúku valdi. Miklu má áorka með orðfæri, kærleika og innilegum tengslum við fólk. Þeim fræjum hafði Vigdís sáð löngu áður en hún var kjörin forseti. Hún heillaði fólk með því að vera hún sjálf, óhrædd við að fara eigin leiðir. Ekki síst hefur verið öðrum innblástur hvernig hún tókst á við persónulegt mótlæti. Hið mjúka vald felst nefnilega ekki síður í því ósagða og allt umlykjandi. Á tímum þar sem harka hefur færst í samskipti þjóða er gott að hafa í huga að þó að mýktin virðist ekki eiga upp á pallborðið þessa stundina, þá sigrar hún alltaf að lokum því áhrif hennar vara lengur.

Um þetta skrifa ég í grein sem birtist í fylgiblaði Morgunblaðsins í dag, Vigdísi Finnbogadóttur til heiðurs. Greinina alla má líka lesa á vefsíðu forsetaembættisins.

Ég vil fá að þakka þér, Vigdís Finnbogadóttir, fyrir ómetanlegt framlag þitt í gegnum tíðina – fyrir kærleika þinn og alúð, hugrekki og mýkt. Til hamingju með daginn!

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 15. apríl.

  • Ljósmynd: Skrifstofa forseta Íslands/Sigurjón Ragnar
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar