Fréttapistill | 05. maí 2025

Ríkisheimsókn hefst á morgun

Á morgun hefst þriggja daga ríkisheimsókn til Svíþjóðar, þar sem gestgjafar okkar verða Karl XVI. Gústaf konungur og Silvía drottning ásamt Viktoríu krónprinsessu og Daníel prins. Í opinberu sendinefndinni eru einnig utanríkisráðherra og heilbrigðisráðherra, en auk þess fylgja okkur fulltrúar úr íslensku viðskipta- og menningarlífi.

Við hlökkum mikið til að fagna með þessum hætti vináttu Íslands og Svíþjóðar, styrkja tengslin og vinna að enn frekara samstarfi þjóðanna svo sem á sviði heilbrigðismála og líftækni, sjónvarps- og kvikmyndagerðar og öryggismála, sem eru helstu áhersluatriði þessarar heimsóknar.

Dagskráin hefst með formlegri móttökuathöfn við Konungshöllina í Stokkhólmi í fyrramálið, en nánar má lesa um heimsóknina á vefsíðu forsetaembættisins.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 5. maí 2025.

  • Ljósmyndir: Peter Knutson/Kungahuset og Aldís Pálsdóttir/Skrifstofa forseta Íslands.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar