Fjármál embættis forseta Íslands

Alþingi ákveður með fjárlögum á ári hverju hver framlög skuli vera til rekstrar embættis forseta Íslands. Rekstrarniðurstaða birtist svo í ríkisreikningi hvers árs.

Helstu útgjaldaþættir hjá embættinu eru rekstur húsnæðis, laun starfsmanna og kostnaður vegna opinberra heimsókna og annarra ferðalaga. Unnt að nálgast ársreikning embættis forseta Íslands frá ári til árs á vef Fjársýslu ríkssins.

Kostnaður af rekstri embættis forseta Íslands árið 2024 var 412 milljónir króna skv. ríkisreikningi sem birtur var á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar