Fréttir | 07. feb. 2025

UTmessan

Forseti flytur ávarp og afhendir Upplýsingatækniverðlaun Ský á UTmessunni sem haldin er í Hörpu í Reykjavík. Er þetta í sextánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Íslensku gagnaverin atNorth, Borealis Data Center og Verne Global hrepptu heiðursverðlaunin í ár fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni. 

Á UTmessunni koma saman helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins til að deila nýjungum, hvetja fólk til að kynnast iðnaðinum og sýna hvað tæknin getur gert fyrir daglegt líf.

Auk heiðursverðlauna Ský afhenti forseti einnig undirverðlaun í sex flokkum. Fyrirtækið Bara tala var verðlaunað sem fyrirmynd í fjölbreytileika, Treble Technologies var verðlaunað fyrir að vera besta sprotafyrirtækið, Noona þótti veita bestu almennu stafrænu þjónustuna, HS Orka – Auðlindastýring var verðlaunuð fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna, Laki Power hlaut verðlaun fyrir að vera besta UT-fyrirtækið í flokki minni fyrirtækja og besta UT-fyrirtækið í flokki stærri fyrirtækja var Festi.

Í ávarpi sínu sagði forseti mannkynið nú svo upplifa gríðarhraðar tækniframfarir og að enginn einstaklingur, fyrirtæki eða þjóð komist undan því að láta sig varða þær
miklu umbreytingar sem byltingunni fylgja. „Eins og gildir um flestar byltingar, þá leggja þær grunn framfara, en þeim fylgja bæði góðir hlutir og slæmir. Líklega er það ein stærsta áskorun mannskyns þessi misserin að reyna að tryggja að tæknin þjóni mannkyninu en ekki öfugt. Að tæknin leysi vandamál en búi ekki til nýjar og erfiðari áskoranir."

Ávarp forseta má lesa hér.

Sístækkandi hlutverk gagnavera á heimsvísu

Í umsögn dómnefndar um handhafa heiðursverðlaunanna segir að gagnaver hafa verið vanmetinn þáttur í uppbyggingu ákjósanlegrar stöðu Íslands á sviði upplýsingatækni, stafrænna samskipta og almannaöryggis. Frá því að fyrsta alþjóðlega gagnaverið hóf hér starfsemi árið 2012 hafi iðnaðinum vaxið ásmegin og nú séu hér þrjú fyrirtæki á þessu sviði sem teljist öflug á alþjóðlegan mælikvarða. Ísland henti vel fyrir rekstur gagnavera þar sem hér megi nota náttúrulega kælingu stærstan part árs, sem nýti raforkuna vel, og orkuinnviðir séu traustir. Viðskiptavinir gagnavera séu reiðubúnir að greiða gott verð fyrir raforku og hærra en ella fyrir orku sem unnin er úr endurnýjanlegum orkugjöfum.

„Gagnaver munu leika sístækkandi hlutverk á heimsvísu á næstu árum með tilkomu gervigreindar og eftir því sem fleiri stafrænar þjónustur verða veittar „úr skýinu". Fyrirtækin þrjú; atNorth, Borealis Data Center og Verne Global hafa verið brautryðjendur hér á landi, og skapað fordæmi og skilyrði fyrir frekari vexti greinarinnar í framtíðinni," segir jafnframt í umsögn dómnefndar.

Nánari upplýsingar um verðlaunahafa í öllum flokkum má nálgast hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar