• Ljósmynd: Ástvaldur Lárusson
  • Ljósmynd: Ástvaldur Lárusson
  • Ljósmynd: Ástvaldur Lárusson
Fréttir | 20. mars 2025

Búnaðarþing

Forseti flytur ávarp við setningu Búnaðarþings, ársfundar Bændasamtakanna, sem haldið er ár hvert að vori í Reykjavík. Í ávarpinu sínu sagði forseti að landbúnaður væri grunnstoð allra samfélaga og hluti af sjálfstæði og ímynd hverrar þjóðar. Máli skipti að landið sé í blómlegri byggð, fyrir okkur sjálf og sannarlega líka fyrir þau sem sæki landið heim.

Þá vék forseti að matvæla- og fæðuöryggi í ræðu sinni og sagði þá umræðu brýnni nú en áður. Bændur gegni þannig óbeint lykilhlutverki í vörnum landsins. „Sérstaklega getur reynt á slíkt á tímum þegar aðgengi að fæðu getur orðið takmarkað fyrir tilstuðlan örra og óvæntra sviptinga á alþjóðavettvangi, sem og vegna breytinga á loftslagi, stríðsátaka og heimsfaraldra. Allt getur þetta gert það að verkum að flutningar og alþjóðleg viðskipti sem við höfum lengi getað treyst á verða ótrygg.

„Öflug matvælaframleiðsla um allt land er því ekki bara æskileg, heldur líka nauðsynleg. Það er mikilvægt að bændur sameinist um notkun aðferða sem stuðla að hagnýtingu auðlinda til að viðhalda framleiðslunni á sjálfbæran máta svo að íslenska þjóðin hafi aðgang að nauðsynlegum fæðutegundum á þessum umbrotatímum - sem og til framtíðar," sagði í ávarpi forseta.

Lærði margt í sveitinni í Skagafirði

Forseti sagði einnig frá sínu fyrsta starfi um ævina, þegar hún dvaldi sjö ára gömul í sveit í Skagafirðinum og tók þar næstu árin þátt í sveitastörfum frá sauðburði framyfir réttir.

„Í sveitinni lærði ég margt sem ég bý enn að í dag, margt það sem gerði mig að þeirri manneskju sem ég er. Líklega ber þar helst að nefna vinnusemi og velvild í garð dýra og náttúrunnar. Ég vona að ég hljómi ekki eins og ég sé aldagömul þegar ég segi ykkur að þar lærði ég ekki bara að mjólka kýr, rýja kindur og raka í garða, heldur líka að strokka smjör, búa til skyr og gefa hænsnunum alla matarafganga. Engu var sóað, allt var nýtt. Unnið var frá morgni til kvölds, sumarfrí var ekki sjálfgefið og sjaldan tekið.

„Margt hefur breyst frá því ég var í sveit og ég held því ekki fram að þessi sumur mín gefi mér endilega mikið innsæi í ykkar störf í dag, né skil ég fyllilega allar þær áskoranir sem þið takist á við í sífellt flóknara samhengi, bæði hér heima og að heiman. En þessi lífs- og starfsreynsla gaf mér ástríðu fyrir landinu okkar og öllu því sem það gefur af sér og einnig fyrir þeim sem það rækta af vinnusemi og alúð.“

Ávarp forseta á Búnaðarþingi má lesa í fullri lengd hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar