„Framtíðin er sannarlega björt“
18. mars 2026
Ljósmyndir: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Forseti tekur þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar.




Forseti tók þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Keppnin hefst ár hvert á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, og lýkur í mars með því að valdir eru þrír bestu upplesararnir í hverju byggðarlagi. Sigurvegari keppninnar í Hafnarfirði að þessu sinni var Ásthildur Friðriksdóttir, nemandi í Setbergsskóla, Arna Hlín Ýmisdóttir úr Lækjarskóla varð í öðru sæti og Ómar Þór Karlsson úr Hraunvallaskóla í því þriðja.
Á lokahátíðinni var meðal annars lesið úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson sem fjallar um Höllu sem flytur til framandi lands þar sem hún á erfitt með að fóta sig. Forseti hrósaði flytjendum fyrir framúrskarandi flutning og fyrir hugrekki til að stíga út fyrir þægindarammann eins og sögupersónan Halla. Og forseti bætti við: „Framtíðin er sannarlega björt þegar börn lesa jafn vel og hér var gert og flytja ljóð af svo miklu innsæi og tilfinningagreind“.
Þrjátíu ár eru síðan Stóra upplestrarkeppnin hóf göngu sína í Hafnarfirði en hún er nú haldin um land allt. Markmið keppninnar er að vekja áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði en reynslan hefur sýnt að hún stuðlar einnig að bættum lesskilningi, auknu sjálfstrausti nemenda og er hvetjandi fyrir börn með lestrarörðugleika.
Á vef Stóru upplestrarkeppninnar er ýmiss fróðleikur um keppnina.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“