Samstaða og kærleikur
26. nóvember 2026
Ljósmynd: Jon Sullivan.
Sameiginleg yfirlýsing forseta Íslands og biskups Íslands.

Á vef Rauða krossins má nálgast upplýsingar um sálrænan stuðning í kjölfar áfalla.
Sjá nánar.
Forseti Íslands og biskup Íslands hafa sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu vegna hins sviplega atburðar þegar Jökull ÞH 299 fórst úti fyrir Austfjörðum:
„Hugur okkar og bænir eru hjá öllum þeim sem eiga um sárt að binda eftir hið hörmulega sjóslys er Jökull ÞH fórst í gærkvöldi. Um leið og við erum þakklát fyrir mannbjörgina sem varð snertir sorgin okkur öll vegna þeirra er létust í gær. Á slíkum sorgarstundum er mikilvægt að við stöndum saman.
Við hvetjum þau sem þurfa á stuðningi að halda til að leita sér hjálpar og vekjum athygli á úrræðum Rauða krossins, Þjóðkirkjunnar og Heilsugæslunnar.
Kirkjur landsins standa fólki opnar til að eiga þar kyrrðarstund, kveikja á kerti og minnast þeirra sem við höfum misst. Við vonum að sem flest trú- og lífsskoðunarfélög opni dyr sínar með líkum hætti.
Á sunnudaginn, fyrsta sunnudag í aðventu, verða aðventustundir í mörgum kirkjum landsins. Við hvetjum fólk til að koma saman, þar eða annars staðar, eiga góða samverustund og taka vel utan um hvert annað.
Það er á stundum sem þessum sem við finnum hvað samstaða og kærleikur skipta miklu máli.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands“
Fleiri fréttir

26. nóvember 2026
Þrekvirki unnið við krefjandi aðstæður
Forsetahjón senda ástvinum látinna sjómanna samúðarkveðjur.
26. nóvember 2026
Þrekvirki unnið við krefjandi aðstæður

25. nóvember 2026
Fjórir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum á Bessastöðum.
25. nóvember 2026
Fjórir nýir sendiherrar

19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna
Forseti tekur þátt í opnu samtali um íslenskt mál og tungumálakennslu.
19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna