Þrekvirki unnið við krefjandi aðstæður
26. nóvember 2026
Ljósmynd: EFÍ.
Forsetahjón senda ástvinum látinna sjómanna samúðarkveðjur.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og maki hennar, Björn Skúlason, senda fjölskyldum og ástvinum sjómannanna þriggja sem fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk úti fyrir Austfjörðum innilegar samúðarkveðjur. Jafnframt senda þau öllum þeim sem komu að björgun fjórtán annarra í áhöfn Jökuls þakkir fyrir einstakt þrekvirki við krefjandi aðstæður. Hugur þeirra er hjá öllum þeim sem eiga um sárt að binda.
Í færslu sem forseti birti á samfélagsmiðlum í morgunsárið segir orðrétt: „Við Björn sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldna og ástvina sjómannanna þriggja sem létust í sjóslysinu fyrir austan. Þakklæti fyrir þau mannslíf sem tekist hefur að bjarga blandast djúpri sorg yfir þeim sem við misstum. Hugur okkar er hjá öllum sem nú eiga um sárt að binda. Við færum Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum, áhöfnum Skinneyjar, Svans og Harðbaks, heilbrigðisstarfsfólki og öllu því góða og hugrakka fólki sem kom að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við afar erfiðar aðstæður. Á sorgarstund sem þessari stöndum við saman sem þjóð. Megi samheldni og kærleikur veita okkur styrk.“
Fleiri fréttir

25. nóvember 2026
Fjórir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum á Bessastöðum.
25. nóvember 2026
Fjórir nýir sendiherrar

19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna
Forseti tekur þátt í opnu samtali um íslenskt mál og tungumálakennslu.
19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna

18. nóvember 2026
Álfar leggja land undir fót
Gestkvæmt á Bessastöðum.
18. nóvember 2026
Álfar leggja land undir fót