Álfar leggja land undir fót
18. nóvember 2026
Ljósmyndir: EFÍ og Eiríkur Þór Einarsson.
Gestkvæmt á Bessastöðum.

Álfarnir gengu hring um Álftanes áður en þeir komu til Bessastaða.




Nokkrum sinnum á ári eru svonefndir heimsóknardagar á Bessastöðum en þá er tekið á móti hópum gesta sem hafa óskað eftir að skoða forsetasetrið. Ef vel stendur á hjá forseta heilsar hún upp á gestina. Miðvikudagurinn 18. nóvember var síðasti heimsóknardagurinn af þessu tagi í ár.
Forseti tók fyrst á móti gönguhópnum Álfunum. Hann er skipaður eldri borgurum af Reykjavíkursvæðinu sem ganga saman tvisvar í viku, um átta kílómetra í senn. Þennan dag höfðu Álfarnir viðdvöl á Bessastöðum eftir að þeir höfðu lagt land undir fót á Álftanesi.
Laust eftir hádegi sótti Tjarnarleikhópurinn forseta heim og söng fyrir hana. Hópurinn hefur starfað í ríflega tuttugu ár en allir þátttakendur búa við langvinn veikindi eða fötlun af einhverju tagi. Hópurinn æfir vikulega í Iðnó yfir vetrartímann og setur leiksýningu þar á svið á hverju vori. Hann hefur einnig ferðast víða innanlands og utan með leiðbeinendum og aðstoðarmönnum.
Einnig tók forseti á móti fulltrúum úr kvennastarfi Hjálpræðishersins þennan dag og stórum hópi fólks sem starfar með Árnessýsludeild og Hveragerðisdeild Rauða krossins á Íslandi.
Fleiri fréttir

19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna
Forseti tekur þátt í opnu samtali um íslenskt mál og tungumálakennslu.
19. nóvember 2026
Veljum íslenskuna

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“