Traust, samvinna og ábyrgð
16. nóvember 2026
Ljósmyndir: RGF og Sunna Ben.
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.

Frá samtali forseta og Juliu Gillard á heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu.




Ávarp forseta á viðburði BÍL í Norræna húsinu er aðgengilegt hér á vefnum.
Sjá nánar.
Forseti og Julia Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, ræddu um jafnrétti og þær gríðarlegu breytingar sem tækniframfarir hafa á samfélög um allan heim á heimsþingi kvenleiðtoga sem fram fer í Reykjavík. Einnig tók forseti þátt í málþingi á vegum Bandalags íslenskra listamanna (BÍL) sem er að ýta af stað átaki um ábyrga þróun gervigreindar.
Reykjavík Global Forum er árlegt heimsþing kvenleiðtoga sem fram fer í Hörpu í þessari viku. Þingið sækja kvenleiðtogar víðs vegar að úr heiminum en alls eru þátttakendur um fimm hundruð. Forseti og Julia Gillard ræddu meðal annars um mikilvægi trausts, samvinnu og ábyrgrar forystu á tímum hraðrar þróunar gervigreindar. Jafnframt ræddu þær um stöðu kvenleiðtoga, áskoranir og tækifæri næstu kynslóðar leiðtoga og hvernig unnt sé að tryggja að ný tækni þjóni almannahag og styrki lýðræðisleg gildi.
Á degi íslenskrar tungu hrinti Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) af stað átakinu Stillum saman strengi. Því er ætlað að hvetja landsmenn til að nýta gervigreind með ábyrgum hætti. Af því tilefni var dagskrá í Norræna húsinu þar sem BÍL kynnti sérstök tilmæli um þetta efni. Er þeim ætlað að stuðla að jafnvægi milli tækniþróunar og nýsköpunar annars vegar og virðingar fyrir höfundarrétti og forsendum mannlegrar sköpunar hins vegar. Meðal þeirra sem ávörpuðu samkomuna, auk forseta, voru Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti BÍL og Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari.
Í ávarpi sínu í Norræna húsinu sagði forseti meðal annars: „Það er mér sönn ánægja að vera hér með ykkur á Degi íslenskrar tungu og fá að hefja þetta mikilvæga átak, Stillum saman strengi. Mér finnst nafnið einstaklega vel valið því ef það er eitthvað sem við þurfum að gera á tímum örra tæknibreytinga þá er það einmitt að stilla saman strengi. Markmið okkar á ekki að vera að stöðva framfarir heldur að tryggja að þær þjóni manninum og mennskunni. Við eigum ekki að þurfa að velja á milli tækni og lista heldur tryggja að hvort tveggja fái að blómstra.“
Tilmæli BÍL um ábyrga notkun gervigreindar skiptast í eftirfarandi sex kafla:
- Virðum og verndum höfundaréttinn.
- Notkun gervigreindar fylgir ábyrgð.
- Aðeins mannleg sköpun nýtur höfundaréttar.
- Gagnsæi um gervigreind er grundvallaratriði.
- Varist eftirlíkingar – virðum listamanninn.
- Stöndum vörð um mannlega sköpun.
Tilmælin eru aðgengileg á vef bandalagsins.
Fleiri fréttir

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“

11. nóvember 2026
„Virðing fyrir fjölbreytileika ein af forsendum lýðræðisins“
Forseti ávarpar ráðstefnu um samfélagsmiðla og réttindi trans fólks.
11. nóvember 2026
„Virðing fyrir fjölbreytileika ein af forsendum lýðræðisins“