Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
9. október 2026
Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar, Wikipedia og Ólafur Daði Eggertsson.
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.

Á sunnudag býður forseti hópi alþjóðlegra leiðtoga til samtals í Höfða.


Hér á vefnum má fræðast nánar um gjafirnar sem Reagan og Gorbatsjov færðu Vigdísi Finnbogadóttur í tengslum við leiðtogafundinn í Höfða árið 1986.
Sjá nánar.
Forseti býður hópi alþjóðlegra leiðtoga til samtals í Höfða síðdegis sunnudag, 11. október. Þann dag verða 40 ár liðin frá því að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov leiðtogi Sovétríkjanna settust þar niður til að ræða samskipti þjóða sinna og afvopnunarmál. Gestgjafi í Höfða á sunnudaginn er Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
Þátttakendur samtalsins koma meðal annars úr stjórnmálum, alþjóðastarfi, tækni, viðskiptum og fjölmiðlum. Rætt verður um hvernig leiðtogar samtímans geti lagt sitt af mörkum til friðar, aukins trausts og ábyrgari þróunar tækninnar. Hluti gestanna tekur einnig þátt í Hringborði Norðurslóða, sem lýkur á morgun, og Friðarráðstefnunni Imagine Forum, sem fram fer á mánudag.
Þess má geta að í gær var opnuð sýning á efri hæð Höfða um leiðtogafundinn 1986. Meðal gripa þar eru snæugla úr postulíni sem Ronald Reagan gaf Vigdísi Finnbogadóttur þegar hann sótti hana heim áður en fundurinn í Höfða hófst. Einnig er þar falleg stofuklukka sem Gorbatsjov færði Vigdísi þegar hann heimsótti Bessastaði af sama tilefni.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar