„Stjórnmál eru list málamiðlunarinnar“
15. apríl 2026
Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson.
Forseti Íslands í samtali við forseta Slóveníu í Veröld.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, átti samtal við forseta Slóveníu, Nataša Pirc Musar, í Veröld - húsi Vigdísar. Yfirskrift samtalsins var „Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi“ en meðal þess sem þær ræddu um var vaxandi vantraust í alþjóðasamskiptum, áhrif tækniþróunar á lýðræðislega ferla og hlutverk smærri þjóða og ungs fólks í mótun framtíðarinnar.
Forseti Íslands sagði í upphafi ánægjulegt að þær hittust á afmælisdegi frú Vigdísar Finnbogadóttur í húsi sem bæri nafn hennar. Forseti Slóveníu tók undir þau orð og benti á að kvenkyns þjóðarleiðtogar væru enn í miklum minnihluta, bæði innan Evrópu og á heimsvísu.
Hún lýsti jafnframt yfir áhyggjum af því að lýðræðislöndum hefði farið fækkandi á seinni árum og að mikill minnihluti jarðarbúa byggi við lýðræðislegt stjórnarfar. Hún benti líka á að nú um stundir væru vopnuð átök víðar í heiminum en nokkru sinni fyrr frá lokum síðari heimsstyrjaldar og sagði ljóst að fjölmennari og voldugri þjóðir færu í vaxandi mæli á svig við alþjóðalög og samninga. Hún sagði ríka skyldu hvíla á leiðtogum og íbúum lýðræðisríkja um að tala skýrt fyrir þeim gildum sem þau tryðu á og væru grundvöllur fullveldis og friðar. „Völdin sem við höfum felast í orðunum,“ sagði hún í þessu sambandi.
Forseti Íslands beindi talinu einnig að því hlutverki sem kvenleiðtogar gætu gegnt undir þessum kringumstæðum en lagði áherslu á að efla þyrfti atbeina yngri kynslóðarinnar að mótun framtíðarinnar. „Ungt fólk er breytingarafl,“ sagði hún og vísaði meðal annars til eigin reynslu í því sambandi. Musar tók í sama streng og sagði mikilvægt að unga fólkið fengi ekki í arf áratuga gamalt ósætti þeirra sem eldri væru. „Stjórnmál eru list málamiðlunarinnar,“ bætti hún við og sagði öllu máli skipta að þeir sem færu með völd legðu sig fram um að ná sáttum, stæðu við orð sín og virtu reglur réttarríkisins.
Heimsókn Nataša Pirc Musar til Íslands var skipulögð í tengslum við árlegt Velsældarþing sem fram fer í Reykjavík 16. og 17. apríl. Unnt er að sjá upptöku frá viðburðinum hér.
Fleiri fréttir

2. september 2026
Bláa lónið og Alfreð Gíslason heiðruð á Bessastöðum
Forseti afhendir Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026.
2. september 2026
Bláa lónið og Alfreð Gíslason heiðruð á Bessastöðum

31. ágúst 2026
Sólrík söngstund á Bessastöðum
Stiklur úr dagbók forseta.
31. ágúst 2026
Sólrík söngstund á Bessastöðum

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs