„Ljóð eru eins og andleg eróbikk“
11. september 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Sýning helguð ljóðabókaskáp Vigdísar í Bókasafni Garðabæjar.

Unnur Ösp Stefánsdóttir les upp ljóð við opnun ljóðasýningarinnar í Bókasafni Garðabæjar.

Hér á vefnum má fræðast nánar um ljóðabókaskápinn í Thomsen-stofu og ævilangan áhuga Vigdísar á ljóðum.
Sjá nánar.
Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar hefur bókasafn bæjarins sett upp sýningu á bókum sem frú Vigdís Finnbogadóttir hóf að safna saman í fögrum bókaskáp í Thomsen-stofu á Bessastöðum snemma á forsetatíð sinni.
Sýningin samanstendur af bókum úr bókaskápnum, völdum ljóðum og textum sem varpa ljósi á ljóðaáhuga frú Vigdísar. Sá áhugi skín í gegn í fjölmörgum viðtölum sem hafa birst við hana í gegnum tíðina en einnig í tveimur ljóðasöfnum sem hún ritstýrði. Í einu viðtalinu talar frú Vigdís um ljóðalestur sem hugarleikfimi og bætir við að í raun séu „ljóð eins og andleg eróbikk“.
Hugmyndina að sýningunni í Bókasafni Garðabæjar átti Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir, forstöðukona safnsins, en sýningarstjórn var í höndum Ásbjargar Unu Björnsdóttur. Sýningin er opin út októbermánuð.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“