Minningartónleikar Bryndísar Klöru
3. október 2024
Forseti sækir tónleika og flytur ávarp.





Forseti flytur ávarp á tónleikum sem haldnir eru til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur sem haldnir eru í Háskólabíói í Reykjavík. Bryndís Klara lést í kjölfar hnífaárásar á Menningarnótt í Reykjavík.
Góðgerðarráð Verzlunarskóla Íslands stóð fyrir tónleikunum en Bryndís Klara var nemandi við skólann. Allur ágóði tónleikanna rann í minningarsjóð Bryndísar Klöru sem stofnaður var í september með það að markmiði að styðja við verkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi, með áherslu á fræðslu, rannsóknir og vitundarvakningu. Forseti er verndari sjóðsins.
Fjöldi listamanna kom fram á tónleikunum og gaf vinnu sína í þágu málstaðarins. Þar á meðal voru Aron Can, Bubbi Morthens, Friðrik Dór, GDRN og Páll Óskar. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir var kynnir kvöldsins og forseti flutti ávarp þar sem hún þakkaði nemendum Verzlunarskólans fyrir frumkvæðið og talaði fyrir því að brugðist verði við ákalli aðstandenda Bryndísar Klöru Birgisdóttur um að heiðra minningu hennar með því að gera kærleikann að eina vopninu í íslensku samfélagi. Sjá einnig: Riddarar kærleikans.
Fleiri fréttir

11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“
Íslensku menntaverðlaunin afhent á Bessastöðum.
11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“

7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“
Forsetahjón sækja 150 ára afmælishátíð Blönduóss.
7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“

6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“
Forseti afhendir heiðursviðurkenningu fagráðs gegn einelti.
6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“