Nýr sendiherra Japans
8. janúar 2025
Forseti tekur við trúnaðarbréfi.





Forseti tók á móti nýjum sendiherra Japans, Keizo Takewaka, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um traust samskipti Íslands og Japans og leiðir til að styrkja þau enn frekar á sviðum viðskipta og menningar. Í því samhengi var meðal annars rætt um íslenskar bókmenntir sem þýddar hafa verið á japönsku og um kvikmyndina Snertingu sem byggir á samnefndri skáldsögu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson þar sem sögusviðið er íslenskt og japanskt.
Stefna Íslands í jafnréttismálum var rædd og einnig staða menntamála í löndunum tveimur. Þá var rætt um heimssýninguna EXPO 2025 sem fram undan er í Osaka í Japan. Norðurlönd verða þar með sameiginlegan norrænan skála sem ætlað er að styrkja tengslin við Japan og japönsk fyrirtæki. Af þessu tilefni heldur forseti til Osaka á heimssýninguna í maí ásamt íslenskri sendinefnd og tekur þátt í viðamikilli dagskrá.
Að lokinni afhendingu trúnaðarbréfsins heilsaði forseti starfsfólki japanska sendiráðsins á Íslandi. Loks var boðið til móttöku fyrir embættismenn og fulltrúa úr íslensku samfélagi sem sinna samskiptum Íslands og Japans.
Fleiri fréttir

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“