„Þetta má aldrei gerast aftur“
6. október 2026
Ljósmyndir: Pétur Fjeldsted.
Forseti opnar sýningu um kjarorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.

Yahata Teruko var 8 ára að aldri þegar kjarnorkusprengjan sprakk nærri heimili hennar í Hiroshima.



Opnun sýningar Friðarsafnsins í Hiroshima markar upphafið á fjölbreyttri dagskrá sem tengist 40 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða 1986.
Sjá nánar
Forseti opnaði sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki árið 1945. Um er að ræða farandsýningu sem kemur hingað til lands frá Friðarsafninu í Hiroshima. Hún samanstendur af munum, ljósmyndum og frásögnum tengdum árásunum en einnig geta gestir nýtt sér sýndarveruleikabúnað. Miðvikudaginn 7. október verður tengd sýning um sama efni opnuð í Háskóla Íslands.
Dagskráin í Ráðhúsinu hófst á því að forseti borgarstjórnar, Björg Magnúsdóttir, bauð gesti velkomna en síðan tók Yahata Teruko til máls. Teruko er svonefnd hibakusha, ein af eftirlifandi fórnarlömbum kjarnorkuárásanna sem borið hafa vitni um hryllileg áhrif þeirra. Hún var átta ára gömul þegar kjarnorkusprengjan féll í 2,5 kílómetra fjarlægð frá heimili hennar í Hiroshima. Hún rifjaði upp þá reynslu og lýsti víðtækum afleiðingum sprengingarinnar.
Næst flutti Keizo Takewaka, sendiherra Japans á Íslandi, ávarp. Hann rifjaði meðal annars upp heimsókn forseta Íslands til Japans vorið 2025. Meðal viðkomustaða hennar var Friðarsafnið í Hiroshima og hafði heimsóknin sín áhrif á að farandsýning safnsins er nú komin hingað til lands með stuðningi borgaryfirvalda í Reykjavík, Hiroshima og Nagasaki, sendiráðsins, Háskóla Íslands og safna í Japan.
Að síðustu tók forseti til máls. „Það eru staðir sem við heimsækjum,“ sagði hún, „og svo eru staðir sem fylgja okkur. Hiroshima hefur fylgt mér síðan – ljósmyndirnar, gripirnir, frásagnirnar af lífi barna, foreldra og fjölskyldna sem umturnaðist á augabragði. En það er annað sem hefur, auk hinnar skelfilegu eyðileggingar, markað djúp spor í vitundina og það er sú staðfesta sem hún leiddi af sér: Þetta má aldrei gerast aftur. Þessi orð höfðu djúpa merkingu af vörum konunnar sem fylgdi mér í gegnum safnið í Hiroshima á liðnu ári og þau hafa djúpa merkingu af vörum allra annarra eftirlifandi fórnarlamba kjarorkuárásanna sem hafa varið drjúgum hluta lífs síns í að sjá til þess að minningin um hörmungarnar gleymist ekki.“
Forseti þakkaði Teruko fyrir að hafa komið til Íslands í tilefni sýningarinnar, fyrir að varðveita minninguna og koma henni á framfæri við yngri kynslóðir. Því næst opnaði forseti sýninguna formlega ásamt Yoshifumi Ishida, safnstjóra Friðarsafnsins í Hiroshima.
Sýningin í Tjarnarsal Ráðhússins verður opin til 1. nóvember og sýningin í Háskóla Íslands, sem er á Háskólatorgi, er opin til 7. nóvember. Síðarnefnda sýningin verður opnuð formlega miðvikudaginn 7. október klukkan 12:00 í bókasafninu á 2. hæð Veraldar - húsi Vigdísar. Þar mun Teruko Yahata aftur miðla reynslu sínum og minningum frá Hiroshima.
Ávarp forseta við opnun sýningarinnar í Ráðhúsinu var flutt á ensku og er það aðgengilegt í heild hér á vefnum.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“