„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
29. september 2026
Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson og Höfði Friðarsetur.
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.

Meðal þeirra sem taka þátt í dagskrá afmælisvikunnar er forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar. Myndin var tekin þegar hún og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, ræddu saman í Veröld í apríl.

Hægt er fræðast nánar um Samtal og skrá sig til þátttöku í því á vefnum talasaman.is.
Sjá nánar.
Dagana 6.–12. október verður þess minnst með fjölbreyttum hætti að fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Reykjavík. Viðamest er verkefnið Samtal sem fram fer um allt land 10. október. Þá er vert að nefna að hópur alþjóðlegra leiðtoga kemur saman í Höfða 11. október til að ræða saman um frið, traust, tæknibreytingar og forystuhlutverk á tímum umbreytinga.
Meðal þeirra sem koma til landsins til að taka þátt í dagskránni eru Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu, Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands og fyrrverandi mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Christiane Amanpour, þáttastjórnandi hjá CNN, Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna og Tristan Harris, bandarískur tæknisiðfræðingur og einn stofnenda Center for Humane Technology (Miðstöðvar mannlegrar tækni).
Litið um öxl og fram á veg
Sunnudaginn 11. október verða 40 ár liðin frá því Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, settust niður til samtals í Höfða. Leiðtogafundurinn í Reykjavík varð mikilvægur áfangi í samskiptum stórveldanna og í átt að samningum um fækkun kjarnorkuvopna. Fjörutíu árum síðar stendur mannkynið frammi fyrir djúpstæðum breytingum og alvarlegum áskorunum. Af þessu tilefni hafa fjölmargir aðilar tekið höndum saman um röð samtala og viðburða aðra vikuna í október þar sem friður, framtíðin og ábyrgð okkar gagnvart komandi kynslóðum eru í brennidepli.
Friðarsýning frá Hiroshima
Dagskráin hefst 6. október þegar farandsýning Friðarsafnsins í Hiroshima verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin minnir á skelfilegar afleiðingar kjarnorkuvopna, mikilvægi þess að varðveita frið og tryggja að slíkum vopnum verði aldrei beitt aftur.
Gervigreindin og framtíðin
Hinn 8. október beinist athyglin að þróun gervigreindar og þeim tækifærum og áskorunum sem henni fylgja. Heimildarmynd um áhrif gervigreindar verður sýnd í framhaldsskólum landsins og er á dagskrá RÚV um kvöldið. Meðal viðmælenda í myndinni er Tristan Harris, sem hefur um árabil vakið athygli á áhrifum samfélagsmiðla og nýrrar tækni á einstaklinga, samfélög og lýðræði, en það eru viðfangsefni sem forseti hefur einnig látið sig varða.
Daginn eftir, 9. október, taka forseti, Harris og samstarfsfólk hans þátt í dagskrá í tali og tónum sem er hluti af Hringborði Norðurslóða (The Arctic Circle) í Hörpu. Þar verður nýstárlegu ljósi varpað á gervigreindarbyltinguna. Um kvöldið verður Friðarsúlan, útilistaverk Yoko Ono, síðan tendruð í Viðey. Verkið var vígt árið 2007 og flytur einföld en sígild skilaboð hjónanna Ono og Johns Lennon um mikilvægi friðar.
Samtal kynslóða um land allt
Viðamesti viðburður vikunnar er Samtal sem fer fram laugardaginn 10. október. Ólíkar kynslóðir eru þá hvattar til að setjast niður saman og ræða í einlægni spurninguna: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Ungt fólk mun leiða samtölin sem fara meðal annars fram í framhaldsskólum um land allt.
Hugmyndir og sjónarmið úr samtölunum frá laugardeginum verða dregin saman og miðlað áfram á viðburði í Hörpu sunnudaginn 11. október kl. 14.00. Þar leika ungt fólk, stúlknakórar og karlakórar lykilhlutverk.
Nýr leiðtogafundur í Höfða
Síðdegis á sunnudeginum, 11. október, kemur hópur alþjóðlegra leiðtoga saman í Höfða, þar sem Reagan og Gorbatsjov hittust fyrir réttum fjörutíu árum. Um er að ræða óformlegt samtal fólks úr ólíkum áttum, meðal annars úr stjórnmálum, alþjóðastarfi, tækni, viðskiptum og fjölmiðlum. Rætt verður um hvernig leiðtogar samtímans geti lagt sitt af mörkum til friðar, aukins trausts og ábyrgari þróunar tækninnar.
Friðarráðstefnan Imagine Forum
Dagskrá afmælisvikunnar lýkur á friðarráðstefnunni Imagine Forum í Hörpu 12. október. Meðal dagskrárliða þar er samtal forseta, Nataša Pirc Musar, Mary Robinson og Christiane Amanpour um forystuhlutverkið á tímum sundrungar og óvissu og þann lærdóm sem draga megi af leiðtogafundinum í Reykjavík 1986.
„Samtal er forsenda breytinga“
„Rauði þráðurinn í gegnum þessa daga er einfaldur,“ segir forseti, Halla Tómasdóttir, um dagskrána. „Markmiðið er að staldra við, hlusta og tala saman um það sem skiptir mestu máli. Saga leiðtogafundarins í Höfða minnir okkur á að þótt samtal eitt og sér leysi ekki allar deilur þá er samtal forsenda breytinga. Sögulegt samtal Regans og Gorbatsjov hafði svo sannarlega áhrif á þróun veraldarsögunnar. Fjörutíu árum síðar er tímabært að setja samtal, frið og framtíðina aftur á dagskrá.“
Að skipulagi og framkvæmd viðburða þessarar afmælisviku koma m.a. Embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Hringborð Norðurslóða, Höfði friðarsetur, Samtal - félag til almannaheilla, Forvarnardagurinn 2026, ráðuneyti og menningarstofnanir, framhaldsskólar og háskólar, auk fjölmargra annarra félaga, kóra, samtaka og einstaklinga.
Fleiri fréttir

28. september 2026
„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“
Forseti hvetur almenning til þátttöku í Samtali 10. október.
28. september 2026
„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“

27. september 2026
„850 börn í bíó – það er ekki amalegur áhorfendahópur!“
Stiklur úr dagbók forseta.
27. september 2026
„850 börn í bíó – það er ekki amalegur áhorfendahópur!“

26. september 2026
„Það er vart hægt að hugsa sér mikilvægara hlutverk“
Forseti flytur ávarp á afmælishátíð Landhelgisgæslunnar.
26. september 2026
„Það er vart hægt að hugsa sér mikilvægara hlutverk“