„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“
28. september 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Forseti hvetur almenning til þátttöku í Samtali 10. október.

Framhaldsskólar víða um land leika stórt hlutverk í Samtali 10. október. Myndin er frá heimsókn forseta í Menntaskólann á Akureyri fyrr á þessu ári.
Hægt er að skrá sig til þátttöku í Samtali og fræðast betur um verkefnið á vefnum talasaman.is.
Sjá nánar.
Forseti hvatti almenning til þátttöku í verkefninu Samtali í blaðagrein sem hún birti í Morgunblaðinu um helgina. Samtalið, sem er öllum opið, fer fram 10. október næstkomandi og verður leitt af ungu fólki. Í grein forseta kemur fram að hugmyndin að Samtali hafi kviknað í borðstofunni á Bessastöðum fyrr á þessu ári en orðið að sameiginlegu verkefni margra. Munu framhaldsskólar um land allt leika stórt hlutverk í verkefninu. Greinin er svohljóðandi:
Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Þetta er stór spurning. En þegar svo margt er á hreyfingu í heiminum þurfum við kannski einmitt að gefa okkur tóm til að spyrja hvað við sjálf viljum skapa.
Við lifum á tímum mikilla umbreytinga og óvissu. Stríð geisa og kjarnorkuógnin er aftur orðin lifandi veruleiki. Gervigreindarþróun umbyltir atvinnulífi, menntun og samfélögum okkar á ógnarhraða. Samfélagsmiðlar hafa þegar gjörbreytt því hvernig við eigum samskipti og upplifum heiminn.
Mitt í þessum hröðu breytingum reynir á það sem heldur samfélögum saman: traust, tengsl okkar hvert við annað og hæfni okkar til að ræða saman. Þar stöndum við Íslendingar enn sterkt. Hér ríkir almennt mikið traust, samfélagið er friðsælt og við búum að ríkri hefð fyrir lýðræðislegri þátttöku, samtali og samstöðu.
En ekkert af þessu er sjálfgefið.
Við þurfum að rækta það sem við viljum varðveita.
Þess vegna verður efnt til Samtals um allt land nú í október. Hugmyndin að Samtali kviknaði í borðstofunni á Bessastöðum en hefur síðan vaxið og orðið að sameiginlegu verkefni margra. Fjöldi einstaklinga kemur nú að undirbúningi þess ásamt ungu fólki, skólum, samtökum og stofnunum um allt land.
Kjarnaspurningin í Samtali verður sú sem ég hóf mál mitt á:
Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Markmiðið er ekki að við verðum öll sammála. Heilbrigt lýðræði byggist á virðingu fyrir ólíkum skoðunum og ólíkri lífsreynslu. En ágreiningur þarf ekki að leiða til sundrungar.
Við getum hlustað á ólík sjónarmið af einlægum vilja til að skilja hvert annað betur. Við getum verið ósammála án þess að líta á okkur sem andstæðinga. Og við getum leitað að þeim gildum og vonum sem við eigum sameiginleg þótt okkur greini á um leiðirnar.
Unga fólkið leiðir Samtalið
Ungt fólk verður í fararbroddi Samtalsins. Það er ekki tilviljun. Unga kynslóðin mun lifa lengst með þeim ákvörðunum sem við tökum nú – um náttúruna, tæknina, menntunina, atvinnulífið og mótun samfélagsins næstu áratugi.
Ég hef á síðustu misserum átt mörg samtöl við ungt fólk sem spyr stórra spurninga: Hvert er gildi menntunar þegar gervigreind getur leyst sífellt fleiri verkefni? Hvaða störf verða til í framtíðinni? Hvernig verðum við hamingjusöm í heimi sem keppir stöðugt um athygli okkar? Og jafnvel: Er heimurinn þannig að við viljum sjálf eignast börn?
Þetta eru ekki spurningar sem við sem eldri erum eigum að svara fyrir hönd unga fólksins.
Við eigum að hlusta á raddir þess og móta svörin saman.
Við sem eldri erum berum sannarlega ríka ábyrgð á þeim forsendum sem framtíð þeirra yngri byggist á. Þess vegna er Samtal ekki aðeins samtal milli ungs fólks. Það er samtal kynslóða.
Hugmyndin með Samtali er að foreldrar, afar og ömmur, kennarar, atvinnurekendur, stjórnmálamenn, listafólk og almenningur um allt land setjist niður með unga fólkinu.
Kynslóðajafnrétti snýst ekki aðeins um að hugsa um komandi kynslóðir. Það snýst líka um að gefa þeim sem eru að vaxa úr grasi tækifæri til að láta rödd sína hjóma og hafa áhrif á eigin framtíð.
Hvers vegna er efnt til Samtals nú?
Fyrir fjörutíu árum hittust leiðtogar tveggja stórvelda, Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov, í Reykjavík. Á þeim tíma var mikil spenna á alþjóðavettvangi og ótti almennings við kjarnorkustríð á rökum reistur.
Leiðtogarnir tveir voru ósammála um margt. Fundurinn í Höfða leysti ekki allan ágreining þeirra og honum lauk án undirritaðs samnings. En þeir töluðu saman og samtalið varð mikilvægur áfangi í átt að samningum sem síðar leiddu til verulegrar fækkunar kjarnorkuvopna.
Það má enn draga margvíslegan lærdóm af fundinum í Höfða árið 1986.
Í heimi stríðs og sundrungar er brýnt að setja frið á dagskrá.
Orð eru til alls fyrst.
Það krefst hugrekkis að setjast niður með fólki sem sér heiminn öðrum augum en við sjálf.
Og eitt samtal getur breytt gangi sögunnar.
Nú í október viljum við því ekki aðeins minnast þess sem gerðist í Reykjavík fyrir fjórum áratugum. Við viljum líka minna okkur og aðra á gildi samtalsins.
Við getum ekki kallað eftir samræðum milli þjóða ef við þjálfum okkur ekki sjálf í að tala saman. Við getum ekki skapað friðvænlegan heim án þess að rækta það sem friður í okkar eigin nærsamfélagi byggir á: traust og virðingu, getuna til að hlusta og viljann til að sjá manneskjuna handan ágreiningsins.
Þess vegna vona ég að sem flest taki þátt í Samtali laugardaginn 10. október – í framhaldsskólum og háskólum, á vinnustöðum og heimilum, hjá félagasamtökum, menningarstofnunum eða á öðrum vettvangi um allt land. Hægt er að skrá þátttöku á talasaman.is.
Markmiðið er ekki að við verðum sammála um allt - heldur að við lærum hvert af öðru. Og að við leitum að því sem sameinar okkur án þess að óttast það sem okkur greinir á um.
Spurningin er í raun þessi: Hvernig samfélag viljum við skapa – og hvað getum við, hvert og eitt, lagt af mörkum til þess?
Vonin vex með virkri þátttöku.
„Spurningin er í raun þessi: Hvernig samfélag viljum við skapa – og hvað getum við, hvert og eitt, lagt af mörkum til þess?“ segir forseti meðal annars í grein sinni. Hún er einnig aðgengileg á mbl.is.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

26. september 2026
„Það er vart hægt að hugsa sér mikilvægara hlutverk“
Forseti flytur ávarp á afmælishátíð Landhelgisgæslunnar.
26. september 2026
„Það er vart hægt að hugsa sér mikilvægara hlutverk“

21. september 2026
Tæknin í okkar þágu - ekki öfugt
Forseti birtir grein um tækniþróun og framtíðina.
21. september 2026
Tæknin í okkar þágu - ekki öfugt

16. september 2026
Fimm nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum á Bessastöðum.
16. september 2026
Fimm nýir sendiherrar