Dýrmæt vináttubönd Íslands og Ítalíu
4. maí 2026
Ljósmyndir: © Embætti forseta Ítalíu.
Forseti Íslands fundar með Sergio Mattarella, forseta Ítalíu.

Forseti Íslands og forseti Ítalíu í Quirinale-höllinni í Róm.

Fleiri myndir frá fundinum í Quirinale-höllinni eru aðgengilegar á vef embættis forseta Ítalíu.
Sjá nánar.
Um hádegisbil hitti forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, forseta Ítalíu, Sergio Mattarella, á fundi í Quirinale-höllinni í Róm. Í kjölfarið snæddu þau saman hádegisverð.
Sergio Mattarella er lögfræðingur að mennt og starfaði framan af ævi sem háskólakennari. Hann var kjörinn forseti Ítalíu árið 2015, eftir fjölbreyttan feril sem þingmaður og ráðherra, og hefur enginn gegnt forsetaembættinu lengur þar í landi en hann.
Meðal þess sem bar á góma á fundi forsetanna voru alþjóðamál, orkumál og sjálfbærni. Einnig ræddu þau um dýrmæt vináttubönd Íslands og Ítalíu og fjölbreytt samskipti landanna á sviði menningar, viðskipta og stjórnmála.
Fleiri fréttir

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“