Fálkaorðan veitt á Bessastöðum
1. janúar 2026
Ljósmynd: Sigurjón Ragnar.
Forseti sæmir 14 einstaklinga heiðursmerki fálkaorðunnar.

Forsetahjón ásamt þeim sem sæmdir voru fálkaorðunni á Bessastöðum.
Fálkaorðan er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir mönnum. Forseti Íslands er stórmeistari orðunnar og sæmir einstaklinga heiðursmerkinu að tillögu Orðunefndar.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag. Þau eru:
- Anna Júlíana Sveinsdóttir, söngkona og söngkennari, fyrir framlag til klassískrar tónlistarmenntunar.
- Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, fyrir afreksárangur í knattspyrnu.
- Bragi Valdimar Skúlason, hugmynda- og tónhöfundur, fyrir framlag til þróunar og varðveislu íslenskrar tungu.
- Guðrún Þorgerður Larsen, jarðfræðingur, fyrir framlag til jarðvísinda og almannavarna.
- Ingólfur Guðnason, garðyrkjufræðingur, fyrir frumkvöðlastörf í lífrænni ræktun og kennslu.
- Karl Gunnarsson, sjávarlíffræðingur, fyrir framlag til rannsókna á botnþörungum, lífríki hafsins og vistkerfi strandsvæða.
- Kristján Kristjánsson, heimspekingur og prófessor, fyrir kennslu- og fræðistörf á vettvangi siðfræði og mannkostamenntunar.
- Laufey Lín Bing Jónsdóttir, tónlistarkona, fyrir framlag til tónlistar á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
- Pálmi V. Jónsson, lyf- og öldrunarlæknir og prófessor emeritus, fyrir framlag til öldrunarlækninga og nýsköpunar í öldrunarþjónustu.
- Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur, fyrir sjálfboðastörf í þágu íþróttaiðkunar ungs fólks um allt land og framlag til samfélagsmála í heimabyggð.
- Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi safnstjóri, fyrir framlag til varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.
- Valgerður Benediktsdóttir, fyrrverandi réttindastjóri, fyrir framlag til framgangs íslenskra bókmennta á erlendri grundu.
- Yngvi Pétursson, fyrrverandi rektor og kennari, fyrir framlag til menntunar og brautryðjendastarfs í tölvufræðikennslu á Íslandi.
- Þórey Einarsdóttir, umsjónarkona, fyrir framlag til heimilislausra og bágstaddra.
Fleiri fréttir

8. september 2026
Veljum samtalið
Forseti setur Alþingi.
8. september 2026
Veljum samtalið

7. september 2026
Nýr sendiherra Svíþjóðar
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Jan Lundin.
7. september 2026
Nýr sendiherra Svíþjóðar

7. september 2026
Nýr sendiherra Frakklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi fr. Marie-Gaëlle Robles.
7. september 2026
Nýr sendiherra Frakklands