Ferðafélag Akureyrar 90 ára
23. júlí 2026
Ljósmyndir: Akureyrarbær, FFA og Andrea Dagbjört Vatnsdal Pálsdóttir.
Forsetahjón á ferð um Norðurland.

Forsetahjónin í heimsókn hjá Ferðafélagi Akureyrar. Frá vinstri: Kristín María Hreinsdóttir starfsmaður FFA, Gunnar Már Gunnarsson formaður félagsins, Björn Skúlason eiginmaður forseta, Einar Hjartarson ráðsmaður, Fjóla Kristín Helgadóttir stjórnarmaður í FFA, Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Þorgerður Sigurðardóttir fyrrverandi formaður FFA.

Dagana 23.-24. júli voru forsetahjónin á ferð um Norðurland. Ferðin hófst á Akureyri og lá þaðan um Húsavík og fleiri byggðarlög á Norðurlandi áður en haldið var austur á land.
Á Akureyri heimsóttu forsetahjónin Landsmót skáta að Hömrum, eins og fram kemur í annarri frétt hér á vefnum, en þau fóru einnig Skógarböðin og hittu félaga í Ferðafélagi Akureyrar sem fagnar 90 ára afmæli sínu á árinu. Formaður félagsins, Gunnar Már Gunnarsson, kynnti starfsemi félagsins og ræddi um mikilvægt hlutverk þess í útivist og ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Forseti átti jafnframt fund með Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra Akureyrarbæjar. Þær ræddu meðal annars um stöðu svæðisborgarinnar Akureyrar og mikilvægi beina flugsins um Akureyrarflugvöll.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“