Fjórtán Íslendingar heiðraðir
17. júní 2026
Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar.
Forseti sæmir 14 einstaklinga heiðursmerki fálkaorðunnar.

Forseti ávarpar orðuhafa og aðstandendur þeirra í móttökusal Bessastaða.

Gleðin var í fyrirrúmi í móttöku fyrir orðuhafa og aðstendur þeirra á Bessastöðum á þjóðarhátíðardaginn.
Sjá myndir.
Forseti Íslands sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þau sem hluti orðu að þessu sinni eru:
- Andri Snær Magnason, rithöfundur, fyrir skapandi störf í þágu framtíðar.
- Anna Björnsdóttir, kórstjóri, fyrir störf að mennta-, menningar- og félagsmálum í heimabyggð.
- Ásdís Thoroddsen, leikstjóri, fyrir framlag til miðlunar á íslenskri menningararfleifð.
- Ásgeir Haraldsson, barnalæknir og prófessor emeritus, fyrir fjölþætt störf á sviði barnalækninga og ónæmisfræða.
- Hákon Ingvi Hansson, dýralæknir, fyrir framlag til atvinnumála og samfélagsmála í heimabyggð.
- Hrefna Sætran, matreiðslumeistari, fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri.
- Hreinn Valdimarsson, hljóðmeistari, fyrir framlag til hljóðvinnslu og varðveislu hljóðminja.
- Karólína Elísabetardóttir, bóndi, fyrir frumkvöðlastarf í baráttunni gegn riðu í sauðfé.
- Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, kennari og fornfræðingur, fyrir framlag í þágu menntamála og klassískrar menntunar.
- Miyako Þórðarson, prestur, fyrir störf í þágu heyrnarlausra.
- Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur, fyrir frumkvöðlastarf í rannsóknum á íslenskri náttúru og miðlun þeirra.
- Ólafur Ólafsson, fyrirliði og körfuboltaleikmaður, fyrir forystu fyrir heimabyggð á krefjandi tímum.
- Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins - íslensk strandmenning, fyrir störf í þágu íslenskrar þjóðmenningar.
- Þorsteinn Eggertsson textahöfundur, fyrir framlag til íslenskrar dægurmenningar.
Fleiri fréttir

22. ágúst 2026
Fjölmenni á Bessastöðum á Menningarnótt
Þjóðlegur klæðnaður áberandi á opnu húsi.
22. ágúst 2026
Fjölmenni á Bessastöðum á Menningarnótt

22. ágúst 2026
Fjárfest í menntun, menningu og fólki
Forsetahjón og opinber sendinefnd kynna sér eistneska nýsköpun.
22. ágúst 2026
Fjárfest í menntun, menningu og fólki

21. ágúst 2026
Kveðjustund á Íslandstorgi
Lokadagur ríkisheimsóknar til Eistlands.
21. ágúst 2026
Kveðjustund á Íslandstorgi