Fólk sem þorði að ,,bora dýpra og hugsa lengra“
21. maí 2026
Ljósmyndir: Þorvardur Goði Guðrúnarson.
Forseti fagnar 80 ára borsögu við hátíðlega athöfn á Hellisheiði.

Gestir á afmælishátíð Jarðborana.

Forseti flutti stutt ávarp á fjölmennri afmælishátíð Jarðborana og Ræktunarsambands Flóa og Skeiða í Hellisheiðarvirkjun í tilefni af 80 ára borsögu fyrirtækjanna. Hún lagði meðal annars áherslu á mikilvægi jarðhitans í uppbyggingu íslensks samfélags og hvatti til áframhaldandi framsýni í orkumálum.
Forseti undirstrikaði í ávarpi sínu að árangur Íslands í nýtingu jarðvarma væri einstakur á heimsvísu. Hún minnti á að saga orkuvinnslu hérlendis væri ekki einungis saga tækni og framkvæmda heldur einnig saga hugrekkis og trúar á betra samfélag. Að baki framþróuninni á þessu sviði stæði fólk sem hefði þorað að „bora dýpra og hugsa lengra“ og lagt grunn að þeim lífsgæðum sem þjóðin nýtur nú um stundir. Í lok ávarpsins sagði forseti að orkumál yrðu sífellt mikilvægari á alþjóðavettvangi, bæði með tilliti til hagkerfa, öryggis og loftslags. Ísland hefði þar mikilvægu hlutverki að gegna.
Hellisheiðavirkjun var síðasti viðkomustaður forsetahjóna í ferð þeirra um Suðurland en áður höfðu þau heimsótt tvo skóla á Laugalandi og hjúkrunarheimili og ferðaþjónustufyrirtæki á Hellu.
Fleiri fréttir

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?