Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum
21. júlí 2026
Forseti afhendir Frímanni Sveinssyni viðurkenningu sem listamanni Norðurþings 2026.

Forsetahjónin ásamt Bergþóri Bjarnasyni, sveitarstjóra og Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur, verkefnastjóri Mærudagur.


Forsetahjónin heimsóttu Húsavík á dögunum þar sem þau kynntust mannlífi, menningu og atvinnustarfsemi bæjarins ásamt því að taka þátt í setningu Mærudaga, árlegri bæjarhátíðar Húsvíkinga.
Við komuna til Húsavíkur tóku Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, og Kjartan Páll Þórarinsson, formaður byggðaráðs, á móti forsetahjónunum. Á fundi með fulltrúum sveitarfélagsins fengu þau innsýn í starfsemi Norðurþings og þau verkefni sem efst eru á baugi á svæðinu.
Forsetahjónin heimsóttu einnig Dvalarheimili aldraðra á Húsavík þar sem þau ræddu við íbúa og starfsfólk, og Hvalasafnið þar sem þau kynntu sér sögu hvalveiða og hvalaskoðunar á Íslandi, sem og mikilvægi hafsins fyrir byggðina.
Forsetahjónin fóru einnig í hvalaskoðun á Skjálfanda, nutu útivistar á flóanum og nátturufegðurðar svæðins sem hefur gert Húsavík að einni fremstu hvalaskoðunarhöfn Evrópu. Þau röltu einnig um hafnarsvæðið, heimsóttu brugghúsið Húsavík Öl og kíktu í kaffi á nokkrum heimilum þar sem þau ræddu daginn og veginn, samfélagið og framtíðarsýn íbúanna fyrir svæðið.
Um kvöldið tóku forsetahjónin þátt í setningu Mærudaga þar sem fjöldi heimamanna og gesta kom saman á Hafnarstétt. Bergþór Bjarnason sveitarstjóri setti hátíðina formlega og forseti veitti Frímanni Sveinssyni, viðurkenningu sem listamanni Norðurþings 2026, fyrir framlag hans til lista- og menningarlífs á svæðinu.
Frímann hefur, samhliða löngum ferli sínum sem matreiðslumaður, ræktað myndlistina af mikilli ástríðu og lagt samfélaginu mikið til með tónlist sinni og í tvo áratugi glatt íbúa á dvalarheimili aldraðra með reglulegum söngstundum.
Fleiri fréttir

23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland
Forsetahjón heimsækja Akureyri og taka þátt í Landsmóti skáta.
23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland

23. júlí 2026
Forsetahjón taka þátt í Landsmóti skáta að Hömrum
Hlýjar móttökur og lífleg stemning á stærsta viðburði skátahreyfingarinnar.
23. júlí 2026
Forsetahjón taka þátt í Landsmóti skáta að Hömrum

11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna
Forseti veitti verðlaun í barnaflokki.
11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna