Forsetahjón á ferð um Norðurland
23. júlí 2026
Ljósmyndir: Akureyrarbær, FFA og Andrea Dagbjört Vatnsdal Pálsdóttir.
Forsetahjón heimsækja Akureyri og taka þátt í Landsmóti skáta.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri á fundi sínum.


Dagana 23.-24. júli voru forsetahjónin á ferð um Norðurland. Ferðin hófst á Akureyri og lá þaðan um Húsavík og fleiri byggðarlög á Norðurlandi áður en haldið var austur á land.
Á Akureyri heimsóttu forsetahjónin Landsmót skáta að Hömrum þar sem um 2.000 skátar víðs vegar að af landinu komu saman ásamt þátttakendum frá tíu öðrum löndum. Þar tóku á móti þeim Ingibjörg Guðmundsdóttir mótsstjóri og Harpa Ósk Valgeirsdóttir skátaforingi. Forsetahjónin kynntust starfsemi mótsins, ræddu við unga skáta og leiðtoga og fengu innsýn í það öfluga æskulýðsstarf sem skátahreyfingin stendur fyrir.
Á meðan á dvölinni á Akureyri stóð heimsóttu forsetahjónin einnig Skógarböðin og Ferðafélag Akureyrar sem fagnar 90 ára afmæli sínu á árinu. Formaður félagsins, Gunnar Már Gunnarsson, tók á móti þeim og kynnti starfsemi félagsins og merkt hlutverk þess í útivist og ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Forseti átti jafnframt fund með Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra Akureyrarbæjar, þar sem rætt var um málefni sveitarfélagsins og þróun samfélagsins á Akureyri. Við upphaf fundar var meðal annars rætt um stöðu svæðisborgarinnar Akureyrar og mikilvægi beina flugsins um Akureyrarflugvöll.
Fleiri fréttir

14. ágúst 2026
Ríkisheimsókn forsetahjóna til Eistlands
Fjölbreytt dagskrá í Tallinn 19.-21. ágúst.
14. ágúst 2026
Ríkisheimsókn forsetahjóna til Eistlands

11. ágúst 2026
Bandarískur læknir sæmdur fálkaorðu
Forseti sæmir Stanton Perry riddarakrossi fyrir starf í þágu hjartveikra barna.
11. ágúst 2026
Bandarískur læknir sæmdur fálkaorðu

10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. William H. Long.
10. ágúst 2026
Nýr sendiherra Bandaríkjanna