Forsetahjón taka þátt í Landsmóti skáta að Hömrum
23. júlí 2026
Ljósmyndir: Andrea Dagbjört.
Hlýjar móttökur og lífleg stemning á stærsta viðburði skátahreyfingarinnar.



Forsetahjónin sóttu Landsmót skáta að Hömrum þar sem um 2.000 skátar víðs vegar að af landinu komu saman auk skáta frá tíu öðrum löndum. Mótið er einn stærsti viðburður skátahreyfingarinnar á Íslandi og endurspeglar bæði öflugt innlent starf og sterk alþjóðleg tengsl hreyfingarinnar.
Mótsstjórinn, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Harpa Ósk Valgeirsdóttir, skátahöfðingi, tóku á móti forsetahjónunum og kynntu þeim starfsemina og fjölbreytta dagskrá. Á mótssvæðinu kynntust forsetahjónin af eigin raun þeirri samvinnu, sköpunargleði og útivist sem einkennir skátastarf um land allt. Þau kíktu á skógardagskrá, axarkast, drullubolta og bogfimi og áttu þau ánægjuleg samtöl við unga skáta og leiðtoga, skoðuðu búðir þátttakenda og tóku þátt í ýmsum þrautum með börnum og ungmennum á svæðinu.
Forseti Íslands er verndari skátahreyfingarinnar á Íslandi en landsmót skáta er mikilvægur vettvangur fyrir ungmenni til að eignast nýja vinu, öðlast nýja færni og styrkja samfélagsvitund sína. Landsmótið sýnir jafnframt það öfluga æskulýðsstarf sem skátahreyfingin stendur fyrir og jákvætt samfélagsframlag hennar um allt land.
Fréttir um Landsmót skáta að Hömrum.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland
Forsetahjón heimsækja Akureyri og taka þátt í Landsmóti skáta.
23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland

11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna
Forseti veitti verðlaun í barnaflokki.
11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna

9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.
9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“