Forseti Slóveníu heimsækir Ísland
26. mars 2026
Ljósmynd: Embætti forseta Slóveníu.
Halla Tómasdóttir og Nataša Pirc Musar ræða um velsæld í Veröld.

Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu.
Forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar, heimsækir forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur 15. apríl 2026 í tengslum við árlegt Velsældarþing (Wellbeing Economy Forum) sem fram fer í Reykjavík. Forsetarnir hittast á tvíhliða fundi fyrir hádegið og snæða síðan hádegisverð með forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur. Síðdegis verður opinn viðburður í Veröld — húsi Vigdísar, þar sem forsetarnir taka þátt í samtali undir yfirskriftinni „Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi” („The Courage to Care: Leadership in a Changing World“).
Forseti Íslands, sem er verndari Velsældarþingsins, hefur lengi lagt áherslu á mikilvægi þess að efla samtal um nýjar leiðir og viðmið í efnahagsmálum. Heimsókn forseta Slóveníu til Íslands undirstrikar mikilvægi alþjóðlegs samtals og samvinnu um þróun efnahagskerfa þar sem velsæld fólks og náttúru er höfð að leiðarljósi. Táknrænt er að kvenleiðtogarnir hittist í Veröld — húsi Vigdísar Finnbogadóttur, sem var fyrsta konan sem var kosin forseti í lýðræðislegri kosningu í heiminum árið 1980. Auk þess er 15. apríl afmælisdagur Vigdísar.
Á formlegri dagskrá Velsældarþings, sem verður haldið í Silfurbergi í Hörpu dagana 16. og 17. apríl, koma saman leiðtogar, stjórnmálamenn, hagfræðingar, fulltrúar atvinnulífs, alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Á þinginu verður rætt um hvernig þróa megi efnahagskerfi á alþjóðavísu sem þjóna fjölbreyttum þörfum samfélaga. Fremur en að horfa eingöngu til hagvaxtar og vergrar landsframleiðslu leggja þingfulltrúar áherslu á velsæld og almennari mælikvarða þar sem hugað er að þáttum á borð við lýðheilsu, sjálfbærni, félagslegt réttlæti og umhverfisvernd.
Velsældarþing er nú haldið í fjórða sinn á jafnmörgum árum. Embætti landlæknis skipuleggur þingið í samstarfi við JA PreventNCD, sem er styrkt af EU4Health áætlun Evrópusambandsins. Meðal annarra innlendra og erlendra samstarfsaðila þeirra eru embætti forseta Íslands, heilbrigðisráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Festa – miðstöð um sjálfbærni, Wellbeing Economy Alliance, Wellbeing Economy Governments, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, Efnahags- og framfararstofnun OECD, The B Team, Club of Rome og Earth4All.
Nataša Pirc Musar var kjörin forseti Slóveníu árið 2022. Hún er fyrsta konan til að gegna þessu embætti.
Sjá nánar á vef embættis forseta Slóveníu.
Fleiri fréttir

10. apríl 2026
Samtal um sjálfbærni og tækniþróun
Forsetahjón heimsækja Akureyri.
10. apríl 2026
Samtal um sjálfbærni og tækniþróun

9. apríl 2026
Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar
Forseti hvetur til samtals og stefnumörkunar.
9. apríl 2026
Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar

29. mars 2026
Snorri Dagur hlýtur Ásgeirsbikarinn
Forseti afhendir forsetabikar fyrir sundafrek.
29. mars 2026
Snorri Dagur hlýtur Ásgeirsbikarinn