Forseti tekur sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind
6. júlí 2026
Vinnuferð forseta til Genf í Sviss.
Fréttatilkynning um stofnun alþjóðlegrar ráðgjafanefndar um gervigreind er aðgengileg á vef ITU.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, verður meðal stofnfélaga í nýrri alþjóðlegri ráðgjafanefnd, AI for Good Global Commission. Nefndin hefur það hlutverk að stuðla að því að gervigreind verði nýtt til góðs. Hún kemur saman í fyrsta sinn í Genf í Sviss miðvikudaginn 8. júlí í tengslum við Heimsþing um gervigreind til góðs (The AI for Good Global Summit).
Heimsþing um gervigreind til góðs, sem haldið er á vegum Alþjóðafjarskiptasambandsins ITU, fer fram dagana 7.–10. júlí. Þingið er hluti af Stafrænni viku í Genf (Geneva Digital Week). Þar eru einnig á dagskrá tvær ráðstefnur á vegum Sameinuðu þjóðanna, önnur um upplýsingasamfélagið (World Summit on the Information Society) og hin um opinbera stefnumótun á sviði gervigreindar (Global Dialogue on AI Governance). Forseti mun ávarpa gesti á síðastnefndu ráðstefnunni á morgun, þriðjudaginn 7. júlí, og gesti á Heimsþingi um gervigreind til góðs miðvikudaginn 8. júlí. Einnig mun hún eiga samtöl við þátttakendur í þessum þremur viðburðum.
Forseti hefur á liðnum misserum lagt ríka áherslu á að tækniframfarir verði að þjóna almenningi, að ungt fólk fái að hlutast til um mótun framtíðar sinnar og að sú samfélagslega umbreyting sem felst í þróun gervigreindar auki ekki ójöfnuð.
Fleiri fréttir

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?