Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
22. október 2026
Ljósmyndir: HÍ/Kristinn Ingvarsson og Ernir Eyjólfsson.
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.

Forseti og Cass Sunstein ræddu saman um samfélagsmiðla, ákvarðanatöku og andlega líðan.



Hægt að er nálgast upptöku af samtali forseta og Cass Sunstein á Vimeo-vef Háskóla Íslands.
Skoða
Forseti tók þátt í samtali um áhrif samfélagsmiðla á líðan almennings við prófessor Cass Stunstein í hástíðarsal Háskóla Íslands fimmtudaginn 22. október. Sunstein er nafnkunnur bandarískur fræðimaður á sviði lögfræði, atferlisvísinda og opinberrar stefnumótunar. Síðar þennan sama dag ræddi forseti við Jón Gunnarsson verkefnastjóra um sjálfbærni og áhrif tækniþróunar á vinnumarkaðinn. Var samtal þeirra Jóns hluti af viðburði sem ungmennaráð Festu skipulagði.
Prófessor Cass R. Sunstein, sem gegnir stöðu við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, hefur tekið þátt í opinberri stefnumótun stjórnvalda víða um heim og skrifað bækur um ýmsa áhrifaþætti sem móta hegðun og líðan almennings í nútímasamfélagi. Forseti hefur lagt áherslu á mikilvægi andlegrar heilsu og að reisa þurfi skjólbelti í kringum börn og ungmenni, ekki síst gagnvart stafrænu áreiti. Meðal þess sem bar á góma í samtali þeirra voru persónulegar og félagslegar ástæður þess að erfitt er að yfirgefa samfélagsmiðla sem þorri fólks notar. Einnig ræddu þau um hvernig sjónarmið ungs fólks gætu mótað stafrænt umhverfi framtíðarinnar. Viðburðurinn var skipulagður í tengslum við rannsóknina VAL sem Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóli Íslands, leiðir í samstarfi við vísindafólk erlendis, meðal annars frá Harvard-háskóla.
Festa, miðstöð um sjálfbærni, hefur verið starfrækt frá árinu 2011 en í byrjun þessa árs var stofnað ungmennaráð Festu sem er vettvangur fyrir ungt fólk sem vill hafa áhrif á sjálfbæra umbreytingu í íslensku atvinnulífi og samfélagi. Þar sitja einstaklingar á aldrinum 18 til 28 ára, sem starfa hjá aðildarfélögum Festu og eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á sjálfbærni og samfélagsmálum. Samtal forseta og Jóns Gunnarsonar, sem starfar hjá Samorku, var hluti af fyrsta opinbera viðburði ungmennaráðsins. Þau ræddu meðal annars um mikilvægi sjálfbærrar þróunar og hvaða tækifæri og hættur felast í áhrifum gervigreindar á starfsumhverfi og framtíðarmöguleika ungs fólks.
Fleiri fréttir

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar