Gervigreind til góðs
21. apríl 2026
Forseti efnir til samtals um samfélagsleg áhrif gervigreindar.

Hópurinn sem hittist á Bessastöðum til að ræða um áhrif gervigreindar.

Forseti boðaði til samtals á Bessastöðum með ýmsum fagaðilum til að ræða um áhrif gervigreindar á samfélagsþróun og þau tækifæri og hættur sem í henni felast. Forseti hefur rætt opinberlega um þetta efni undanfarin misseri og sagði meðal annars í blaðagrein sem hún birti um efnið fyrr í þessum mánuði:
„Á næstu vikum og mánuðum þarf þjóðin að taka mikilvægar ákvarðanir. Sveitarstjórnarkosningar í maí og kosningar í ágúst um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið kalla á upplýsta, yfirvegaða og heiðarlega umræðu. Það er brýnt að við séum meðvituð um áhrif tækninnar á lýðræðislega ferla og skoðanamyndun og setjum henni skýran ramma þar sem við á.“
Meðal þess sem bar á góma í borðstofunni á Bessastöðum var mikilvægi þess að móta skýrari stefnu í málaflokknum. Efna þyrfti til samtals um það samfélag sem þjóðin vildi að þróaðist hér á landi á næstu áratugum. Brýnt væri að tæknin þjónaði almenningi og slíkri framtíðarsýn en ekki öfugt. Ákveðið var að halda umræðum um efnið áfram og hvetja til frekara samstarfs á þessum vettvangi.
„Ísland hefur ýmsa burði til að vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgri nýtingu gervigreindar,“ segir forseti meðal annars í grein sinni um gervigreind sem birtist 10. apríl.
Sjá greinina í heild sinni.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“