Hádegisverður með Alberti fursta af Mónakó
2. júlí 2026
Stiklur úr dagbók forseta.

Forseti ávarpar gesti á tónleikunum Bergmál sem fram fóru á Þingvöllum.


Sunnudaginn 28. júní var forseti í viðtali við Pál Magnússon í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni. Hún ræddi þar meðal annars um áform um að efna til víðtæks samtals meðal Íslendinga um framtíðina.
Hlusta á viðtalið.
Á liðnum vikum hefur forseti tekið á móti góðum gestum á Bessastöðum, þar á meðal Alberti II, fursta af Mónakó, og hópi nemenda í Alþjóðlegum sumarskóla Árnastofnunar. Jafnframt hafa forsetahjón sótt menningarviðburði, þar á meðal á Þingvöllum. Síðustu viku júnímánaðar fóru þau einnig í opinbera heimsókn til Færeyja sem sagt hefur verið frá hér á vefnum.
Forsetahjón voru viðstödd útitónleikana Bergmál sem haldnir voru á Þingvöllum laugardaginn 20. júní. Forseti flutti þar stutt ávarp þar sem hún ræddi meðal annars um táknræna merkingu Þingvalla og áhrifamátt tónlistarinnar. Hún sagði meðal annars: „Þegar við hlustum á tónlist – svo ekki sé talað um þegar við syngjum saman á okkar ástkæru tungu – gerist eitthvað merkilegt í mannssálinni. Við hættum um stund að hugsa um það sem skilur okkur að og finnum þess í stað fyrir tengingu hvert við annað. Við verðum hluti af sama takti, sömu sögu. Það er dýrmæt tilfinning. Og friður hefst oft einmitt þar - í tengslum milli fólks.“
Forseti bauð Alberti II, fursta af Mónakó, til hádegisverðar á Bessastöðum miðvikudaginn 1. júlí. Þau ræddu meðal annars hvernig smáríki geta haft áhrif á alþjóðlegum vettvangi og gildi góðrar samvinnu þeirra á milli. Um mánaðarmótin átti forseti einnig fundi með nokkrum tilvonandi sendiherrum Íslands á Norðurlöndum.
Fimmtudaginn 2. júlí tók forseti síðan á móti um 50 nemendum frá ýmsum löndum sem sækja sumarskóla í íslenskri tungu og menningu sem er skipulagður af Árnastofnun. Námið er einkum ætlað stúdentum í fræðilegu námi en aðrir sem áhuga hafa á íslensku nútímamáli og menningu eiga þess líka kost að sækja það. Sumarskólinn fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir og hafa margir þátttakendur orðið miklir Íslandsvinir. Í samræðum sínum við gestina sagðist forseti vonast til að þau bættust með tíð og tíma í dýrmætan hóp menningarlegra sendiherra Íslands á alþjóðlegum vettvangi.
Fleiri fréttir

29. september 2026
Nýr sendiherra Bretlands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi fr. Jane Stevens.
29. september 2026
Nýr sendiherra Bretlands

29. september 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
29. september 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

28. september 2026
„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“
Forseti hvetur almenning til þátttöku í Samtali 10. október.
28. september 2026
„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“