Heimsókn í Stuðlagil og á Bræðsluna
25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Múlaþing.

Forsetahjón í Stuðlagili.



Forsetahjón heimsóttu Múlaþing dagana 24.-25. júlí þar sem þau kynntu sér menningarlíf, náttúru og atvinnustarfsemi svæðisins ásamt því að hitta íbúa. Ferðin var farin í framhaldi af ferð forsetahjóna um Norðurland sem sagt er frá hér á vefnum.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, tók á móti forsetahjónunum í Jökuldal að morgni 24. júní og sýndi þeim Stuðlagil, eitt þekktasta náttúruundur Austurlands. Þaðan lá leiðin til Borgarfjarðar eystri þar sem forsethjón heimsóttu meðal annars lundabyggðina í Hafnarhólma sem laðar að sér þúsundir gesta á hverju sumri. Einnig heimsóttu þau Fiskverkunar Kalla Sveins og drukku kaffi með heimafólki í Fjarðarborg í boði sveitastjórnar. Um kvöldið sóttu þau svo tónleika á Bræðslunni, einni þekktustu tónlistarhátíð landsins.
Síðari dag ferðarinnar um Múlaþing, 25. júlí, fóru forsetahjón í baðstaðinn Vök við Urriðavatn og sóttu hátíðina Flug og fákar sem fram fór á Egilsstaðaflugvelli.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“