„Afleiðingar stríðsreksturs áþreifanlegar“
5. maí 2026
Ljósmynd: © MSÞ/WFP.
Forseti heimsækir Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og Guðmundur Árnason sendiherra ásamt Rania Dagash-Kamara og Carl Skau í höfuðstöðvum MSÞ.
Forseti sótti heim höfuðstöðvar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna í Róm og kynnti sér starfsemi hennar. Heimsóknin var síðasti dagskrárliðurinn í tveggja daga vinnuferð forseta til Ítalíu.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (MSÞ) er skilgreind sem mannúðarstofnun sem berst gegn hungri alls staðar í heiminum. Meðal markmiða MSÞ er að bjarga mannslífum í neyðartilfellum, draga úr hættu á vannæringu og hungri og virkja einstaklinga, samfélög og ríki til að uppfylla eigin næringarþarfir. MSÞ er skilgreind sem einn af mikilvægustu samstarfsaðilum Íslands á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála.
Meðal þeirra sem forseti og Guðmundur Árnason sendiherra Íslands hittu í höfuðstöðvunum í Róm voru Carl Skau, einn af framkvæmdastjórum MSÞ, Rania Dagash-Kamara aðstoðarframkvæmdastjóri og Marco Calacante sem stjórnar meðal annars stefnumörkun. Forseti kom á framfæri þökkum til MSÞ fyrir viðamikið starf um langt árabil, sem aldrei hefði verið brýnna en nú. ,,Afleiðingar stríðsreksturs verða óþægilega áþreifanlegar þegar Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna er sótt heim og maður fræðist um bein áhrif miskunnarlausra hernaðarátaka á saklaus börn og óbreytta borgara,” sagði hún meðal annars.
Carl Skau og forseti ræddu sérstaklega um stuðning Íslands við starfsemina, þar á meðal skólamáltíðaverkefni í Malaví, Síerra Leóne og Úganda. Fram kom að þau stuðla ekki aðeins að heilbrigði nemenda heldur eru í vissum tilvikum forsenda þess að börn, einkum stúlkur, geti notið viðkomandi menntunar. Skau og forseti voru sammála um að verkefni af þessu tagi geti einnig skipt sköpum fyrir seiglu og sjálfbærni viðkomandi samfélaga þegar til lengri tíma er litið.
Á liðnu ári var Ísland fjórði veigamesti greiðandi framlaga til MSÞ ef miðað er við höfðatölu en þess má geta að einstaklingar geta einnig lagt starfseminni lið með framlögum.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2020. Unnt er að fræðast nánar um starfsemi áætlunarinnar á heimasíðu hennar.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

5. maí 2026
Fagnaðarfundir þegar forseti hitti Bertel Thorvaldsen
Forseti heimsækir Circolo Scandinavo í Róm.
5. maí 2026
Fagnaðarfundir þegar forseti hitti Bertel Thorvaldsen

4. maí 2026
Dýrmæt vináttubönd Íslands og Ítalíu
Forseti Íslands fundar með Sergio Mattarella, forseta Ítalíu.
4. maí 2026
Dýrmæt vináttubönd Íslands og Ítalíu

4. maí 2026
Samtal um frið
Forseti fundar með Leó XIV páfa og Pietro Parolin kardínála.
4. maí 2026
Samtal um frið