Hlýjar móttökur í Tallinn
19. ágúst 2026
Ljósmyndir: Embætti forseta Eistlands.
Fyrsti dagur ríkisheimsóknar til Eistlands.

Forsetahjón heilsa eistnesku forsetahjónunum á Ráðhústorginu í Tallinn.









Forsetahjón, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, hófu þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands í morgun. Gestgjafar þeirra eru forseti Eistlands, Alar Karis, og eiginkona hans, Sirje Karis. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja hin góðu tengsl Íslands og Eistlands.
Dagskráin hófst kl. 10:00 með formlegri móttökuathöfn á Ráðhústorginu í Tallinn. Lúðrasveit lék þjóðsöngva beggja landa og í kjölfarið voru opinberar sendinefndir kynntar fyrir forsetum og mökum þeirra. Að því loknu gengu forseti og fylgdarlið að Frelsistorginu en þar var lagður blómsveigur að minnismerki um sjálfstæðisbaráttu eistnesku þjóðarinnar.
Þessu næst var haldið í embættisbústað forseta Eistlands. Þar skráðu forseti Íslands og maki nöfn sín í gestabók, auk þess sem forsetahjónin skiptust á gjöfum. Halla Tómasdóttir og Alar Karis áttu síðan tæplega klukkustundarlangan fund. Þau ræddu fyrst einslega saman en síðan ásamt fulltrúum sendinefnda.
Um hádegisbil tóku forsetarnir þátt í dagskrá á fjölmennu viðskiptaþingi sem fram fer í tengslum við heimsókn íslenskrar viðskiptinefndar til Eistlands. Þau ræddu þar um áskoranir á sviði gervigreindar og leiðir til að tryggja að hún nýtist almenningi og samfélögum til góðs.
Eftir það sátu forseti, ráðherra og fylgdarlið hádegisverðarfund í boði forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal, í forsætisráðuneytinu. Að loknum hádegisverði var haldið í þinghúsið í Tallinn þar sem þingforsetinn Lauri Hussar tók á móti hópnum. Í kjölfarið átti Hussar, ásamt eistneskum þingmönnum og embættismönnum, fund með forseta og íslensku sendinefndinni.
Um miðbik dagsins tók Björn Skúlason þátt í sérstakri dagskrá ásamt frú Karis og fylgdarliði. Þau héldu fyrst í heimsókn í TFTAK frumkvöðlasetrið þar sem unnið er að nýsköpun í matvælaframleiðslu og líftækni. Þaðan héldu þau í Niguliste-safnið sem er helgað eistneskri sögu, listum og byggingarlist. Safnið er í Kirkju heilags Nikulásar sem er eitt af kennileitum Tallinn. Síðasti viðkomustaður þeirra var Anni Arro Studio, vinnustofa matgæðingsins Anni Arro sem rekið hefur vinsæla veitingastaði og er þekkt fyrir matreiðslubækur sínar og matreiðsluþætti.
Að loknum fundum dagsins var forseta ofarlega í huga sá vinarhugur sem mætt hefði þeim forsetahjónum og íslensku sendinefndinni. „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu og hér finnum við sterkt fyrir vináttu og gagnkvæmri virðingu þjóðanna og einlægu þakklæti þeirra í okkar garð. Framundan eru dagar samtals um það sem sameinar okkur og skiptir framtíðina máli – frelsi, lýðræði, öryggi, menntun, tækifæri og ógnanir sem felast í nýrri tækni,“ sagði forseti meðal annars.
Dagskránni í dag lýkur á hátíðarkvöldverði í boði eistnesku forsetahjónanna í Arvo Pärt menningarmiðstöðinni í Laulasmaa.
Hér á vefnum er úrval ljósmynda frá heimsókn forsetahjóna til Eistlands.
Sjá nánar
Fleiri fréttir

14. september 2026
„Getum við lært að vera ósammála fallega?“
Forseti fundar með skólastjórnendum og nemendum framhaldsskóla og háskóla.
14. september 2026
„Getum við lært að vera ósammála fallega?“

11. september 2026
„Ljóð eru eins og andleg eróbikk“
Sýning helguð ljóðabókaskáp Vigdísar í Bókasafni Garðabæjar.
11. september 2026
„Ljóð eru eins og andleg eróbikk“

10. september 2026
Konungur sem helgaði líf sitt þjónustu við þjóð sína
Forsetahjón viðstödd útför Haraldar V Noregskonungs.
10. september 2026
Konungur sem helgaði líf sitt þjónustu við þjóð sína