„Hvert barn er einstakt“
26. febrúar 2026
Ljósmynd: Olga Björt Þórðardóttir.
Forseti ávarpar málþingið „Þar sem reynslan fær rödd“.

Forseti ásamt Guðmundi Björgvin Gylfasyni, formanni Einstakra barna.
Forseti setti málþingið „Þar sem reynslan fær rödd“ sem stuðningsfélagið Einstök börn stóð fyrir á Hilton Reykjavík Nordica. Félagið styður við börn og ungmenni með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni og fjölskyldur þeirra. Meðal þeirra sem tóku til máls á þinginu voru dr. Albert Freedman, Eva Guðrún Sveinsdóttir, Hafdís Ragnarsdóttir og Ásdís Sigurjónsdóttir.
Í opnunarávarpi sínu lagði forseti áherslu á að styrk samfélaga mætti meðal annars mæla með hliðsjón af því hvernig þau kæmu til móts við fólk með ólíkar þarfir. Hún bætti við: „Hvert barn er einstakt. Hvert barn býr yfir sínum eigin styrkleikum, draumum og möguleikum, og hvert barn á rétt á að blómstra á sínum forsendum – ekki síst „einstök börn“. Fjölbreytileiki barna, rétt eins og fullorðinna, er ekki frávik frá normi heldur eðlilegur hluti mannlífsins. Það er hlutverk samfélagsins að skapa rými þar sem þessi fjölbreytileiki fær að njóta sín.“
Sjá ítarlegri umfjöllun um þingið á vef Einstakra barna.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“