Kærleiksríkt hugrekki
14. apríl 2026
Ljósmyndir: Embætti forseta Slóveníu og EFÍ.
Forsetar Íslands og Slóveníu ræða forystuhlutverk í breyttum heimi.

Forseti Slóveníu, Nataša Pirc Musar, tekur þátt í opnu samtali við forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, í Veröld - húsi Vigdísar á morgun, 15. apríl, kl. 16.00. Yfirskrift samtalsins er „Kærleiksríkt hugrekki: Forystuhlutverk í breyttum heimi“. Samtalið er skipulagt í tengslum við Velsældarþing í Reykjavík sem fram fer dagana 16. og 17. apríl.
Viðburðurinn er öllum opinn og þátttakendum að kostnaðarlausu, en skráning er nauðsynleg fyrir þátttöku á staðnum þar sem pláss er takmarkað. Ef aðalsalur fyllist verður gestum vísað í tvo hliðarsali þar sem viðburðinum verður streymt. Hægt er að skrá sig hér.
Í boði verður beint streymi frá samtali forseta Slóveníu og Íslands í Veröld fyrir þau sem vilja fylgjast með annars staðar frá.
Hlekkur á netútsendingu.
Fleiri fréttir

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“