Kvennatrommusveit á Bessastöðum
18. júní 2026
Ljósmyndir: EFÍ, Elísa B. Guðmundsdóttir og Eygló Gísladóttir.
Stiklur úr dagbók forseta

Frá tónleikum Kórs Hallgrímskirkju á Listahátíð í Reykjavík.




Forsetahjón sóttu ýmsa listviðburði sem voru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í júní og buðu einnig listafólki og skipuleggjendum hátíðarinnar til móttöku á Bessastöðum. Meðal fleiri góðra gesta þar á undanförnum vikum voru þátttakendur í verkefninu Snorri West og hátt í 70 erlendir sendiherrar.
Meðal viðburða á Listahátíð sem forsetahjón sóttu voru tónleikar Hildar Guðnadóttur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu 4. júní og tónleikar Kórs Hallgrímskirkju í Hallgrímskirkju 7. júní þar sem verk eftir Hildi og Jón Nordal voru á efnisskránni. Forseti er verndari Listahátíðar og efndi til móttöku fyrir þátttakendur og skipuleggjendur hennar á Bessastöðum 13. júní. Meðal þeirra sem þar glöddu gesti var Ingoma Nshya, fyrsta kvennatrommusveit Rúanda, en hún hafði dagana á undan haldið tvenna tónleika í Borgarleikhúsinu.
Mánudaginn 15. júní tók forseti á móti hópi þátttakenda í verkefninu Snorri West sem miðar að því að kynna Bandaríkjamönnum og Kanadamönnum af íslenskum ættum sögu lands og þjóðar. Helmingur þessa fjórtán manna hóps kom frá Kanada og hinn helmingurinn frá Bandaríkjunum.
Á þjóðhátíðardaginn var svo efnt til árlegrar móttöku á Bessastöðum fyrir erlenda sendiherra, bæði þá sem búsettir eru hérlendis og þá sem eru búsettir erlendis og með fyrirsvar gagnvart Íslandi.
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“