„Leikhúsið er griðastaður“
26. maí 2026
Ljósmyndir: Stefanía Linnet.
Forseti afhendir heiðursverðlaun Grímunnar.

„Leikhúsið er dýrmætara en nokkru sinni fyrr,“ sagði forseti meðal annars í ávarpi sínu á Grímuhátíðinni.


Nánari upplýsingar um Grímuna 2026 eru á vef Sviðslistasambands Íslands.
Sjá nánar.
Forseti afhenti heiðursverðlaun á hátíðarviðburði Grímunnar í Þjóðleikhúsinu. Verðlaunin hlaut búninga- og leikmyndahönnuðurinn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
Gríman er uppskeruhátíð íslenskra sviðslista. Þar eru veitt fjölmörg verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í sviðslistum á undangengnu leikári en einnig sérstök heiðursverðlaun til einstaklings fyrir ómetanlegt framlag til íslenskra sviðslista. Í kynningu á 40 ára ferli Þórunnar Elísabetar kom fram að hún hefði „markað djúp spor í íslensku leikhúsi, óperu og kvikmyndum með einstakri listrænni sýn. … Verk hennar hafa alla tíð einkennst af næmri efniskennd, ríkri myndrænni frásögn og djúpri tengingu við íslenska textílhefð en áhugi hennar og ást á íslenskri þjóðmenningu og handverki hefur verið sterkur áhrifavaldur í verkum hennar.“
Áður en forseti veitti heiðursverðlaunin flutti hún stutt ávarp þar sem hún sagði að á tímum vaxandi skjánotkunar væri leikhúsið mikilvægara en nokkru sinni fyrr. „Það er griðastaður þar sem við eigum einstaka aðild að lifandi augnabliki ásamt öðru fólki,“ sagði hún meðal annars og bætti síðar við:
„Í leikhúsinu starfar stór og fjölbreyttur hópur frjórra einstaklinga að sameiginlegu markmiði. Aðeins hluti hópsins er í sviðsljósinu hverju sinni, aðrir starfa bakvið tjöldin, í fleiri en einum skilningi. Við erum heppin að eiga ykkur að, skapandi fólk sem skrifar, skipuleggur, hannar, lýsir, saumar, smíðar, leikur og leikstýrir, og er þá ekki allt upp talið. Fyrir það vil ég þakka. Þið auðgið samfélagið okkar. Þið hjálpið okkur að skilja betur hvert annað og jafnvel okkur sjálf.“
Sviðslistasamband Íslands stendur fyrir Grímu-hátíðinni í samstarfi við aðildarfélög sín, stofnanir og RÚV.
Fleiri fréttir

27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“
Forseti í samtali við framkvæmdastjóra UNICEF.
27. maí 2026
„Líðan barna er mælikvarði á heilbrigði samfélagsins“

26. maí 2026
Rætt um jafnréttismál og græna orku
Forseti hittir bandarískar öldungadeildarþingkonur.
26. maí 2026
Rætt um jafnréttismál og græna orku

22. maí 2026
„Við getum byggt brýr milli ólíkra sjónarmiða“
Forseti boðar til samtals um framtíðina.
22. maí 2026
„Við getum byggt brýr milli ólíkra sjónarmiða“