Mærudagar settir á Húsavík
24. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland.

Forsetahjónin ásamt Bergþóri Bjarnasyni, sveitarstjóra og Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur, verkefnastjóra Mærudaga.


Forsetahjónin heimsóttu Húsavík í ferð sinni um Norðurland. Þau tóku þar þátt í setningu Mærudaga, árlegri bæjarhátíðar Húsvíkinga, en heimsóttu líka stofnanir og fyrirtæki.
Við komuna til Húsavíkur tóku Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, og Kjartan Páll Þórarinsson, formaður byggðaráðs, á móti forsetahjónunum. Á fundi með fulltrúum sveitarfélagsins fengu þau innsýn í starfsemi Norðurþings og þau verkefni sem efst eru á baugi á svæðinu.
Forsetahjónin heimsóttu einnig Dvalarheimili aldraðra á Húsavík þar sem þau ræddu við íbúa og starfsfólk, og Hvalasafnið þar sem unnt er að kynnast sögu hvalveiða og hvalaskoðunar á Íslandi, og fræðast um mikilvægi hafsins fyrir byggðina á svæðinu. Forsetahjónin fóru síðan í hvalaskoðun á Skjálfanda og nutu nátturufegðurðar svæðisins. Þau heimsóttu einnig brugghúsið Húsavík Öl og kíktu í kaffi á nokkrum heimilum á Húsavík.
Um kvöldið tóku forsetahjónin þátt í setningu Mærudaga á Hafnarstétt. Bergþór Bjarnason sveitarstjóri setti hátíðina formlega en að því loknu veitti forseti Frímanni Sveinssyni viðurkenningu fyrir framlag hans til lista- og menningarlífs á svæðinu. Frímann hefur unnið að myndlist af mikilli ástríðu og lagt samfélaginu lið með tónlist sinni. Í tvo áratugi hann glatt íbúa Dvalaraheimilis aldraðra með reglulegum söngstundum.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“