Matarkista Íslands
23. mars 2026
Ljósmynd: Ástvaldur Lárusson.
Forseti ávarpar Búnaðarþing Bændasamtakanna.

Forseti ásamt Trausta Hjálmarssyni formanni Bændasamtakanna og Margréti Ágústu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra samtakanna.
Forseti flutti ávarp við setningu Búnaðarþings Bændasamtaka Íslands sem fram fór á Hótel Natura í Reykjavík. Meðal annarra sem þar tóku til máls voru Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Einnig flutti Herdís Magna Gunnarsdóttir, varaformaður Bændasamtakanna, erindi sem hún nefndi „Konur sem móta framtíð landbúnaðar“.
Í ávarpi sínu benti forseti meðal annars á að innlend matvælaframleiðsla legði grunn að öryggi íslensku þjóðarinnar í ótryggum heimi. Hún hvatti einnig til þess að yfirvegað og opið samtal færi fram um næstu skref í samskiptum Íslands og Evrópusambandins. Þá ræddi hún um þau margvíslegu tækifæri sem væru til nýsköpunar á vettvangi íslensks landbúnaðar. Hún sagði í því sambandi:
„Matarkista Íslands er margþætt. Í henni finnum við ekki bara landbúnaðarvörur heldur einnig sjávarfang. Í fjölbreyttum afurðum beggja atvinnugreina felast tækifæri til verðmætasköpunar, nýsköpunar og aukinnar velsældar öllum til handa. Matarkista Íslands geymir ekki aðeins úrval gæðaafurða. Hún er einnig táknmynd ábyrgðar, þekkingar og framtíðarsýnar. Það sem við leggjum í þessa kistu nú um stundir mótar lífsgæði og velsæld komandi kynslóða.“
Unnt er að nálgast ávarpið í heild hér á vef embættisins.
Fleiri fréttir

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“