„Öflug hreyfing er óstöðvandi“
20. apríl 2026
Ljósmyndir: EFÍ
Forseti hittir nemendur Alþjóðlega jafnréttisskólans.




Forseti tók á móti nemendum Alþjóðlega jafnréttisskólans á Bessastöðum og átti við þau frjótt samtal um áskoranir og tækifæri í jafnréttisbaráttunni.
Jafnréttisskólinn er, ásamt Jarðhitaskólanum, Sjávarútvegsskólanum og Landgræðsluskólanum, hluti af GRÓ – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu. Í skólanum er boðið upp á diplómanám í alþjóðlegum jafnréttisfræðum.
Að þessu sinni heimsóttu 24 nemendur frá 15 löndum forsetasetrið og kynntu fjögur þeirra lokaverkefni sín. Í framhaldi lögðu þau spurningar fyrir forseta. Forseti lagði áherslu á að breytingar á sviði jafnréttismála, eins og á flestum öðrum sviðum, næðust helst fram ef að baki þeim stæði fjöldahreyfing. „Það er vandalítið að stöðva stakan leiðtoga en öflug hreyfing er óstöðvandi,“ sagði hún meðal annars.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“