Opið hús á Bessastöðum á Menningarnótt
17. ágúst 2026
Ljósmyndir: Eva Björk Ægisdóttir
Gestir hvattir til að mæta í þjóðlegum klæðum.



Í tilefni Menningarnætur verður forsetasetrið á Bessastöðum opið almenningi laugardaginn 22. ágúst 2026. Býðst fólki að skoða staðinn milli kl. 15:00 og 18:00 og munu forsetahjón, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, einnig heilsa upp á gesti. Forseti hyggst að venju klæðast þjóðbúningi á þessum degi og eru þeir gestir sem hafa aðgang að þjóðbúningum hvattir til að fara að dæmi hennar eða klæðast öðrum þjóðlegum klæðnaði.
Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, geta gestir skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins sem eru síðari tíma viðbyggingar. Á forsetasetrinu er merkilegt úrval myndlistar í eigu Listasafns Íslands eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins. Starfsmenn embættis forseta Íslands veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.
Hægt er að fara í sýndarheimsókn til Bessastaða hér á vefnum.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“