Ríkisheimsókn til Eistlands hefst á morgun
18. ágúst 2026
Ljósmynd: EFÍ.
Forsetahjón koma til Tallinn.

Dagskrá viðskiptaþingsins í Tallinn er aðgengileg á vef Eistneska viðskiptaráðsins.
Sjá nánar.
Á morgun, 19. ágúst, hefst þriggja daga ríkisheimsókn forseta og eiginmanns hennar, Björns Skúlasonar, til Eistlands. Í fylgdarliði forseta er Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ásamt opinberri sendinefnd. Forsetahjón og fylgdarlið lentu í Tallinn síðdegis og sitja þar kvöldverð í boði íslenska sendiherrans, Nínu Bjarkar Jónsdóttur. Formleg dagskrá heimsóknarinnar hefst á ráðhústorgi borgarinnar í fyrramálið.
Samhliða ríkisheimsókninni er viðskiptasendinefnd, leidd af Íslandsstofu, komin til Eistlands. Markmiðið er að efla viðskiptatengsl íslenskra og eistneskra fyrirtækja og skapa ný tækifæri til samstarfs. Lögð er áhersla á netöryggi, stafræna heilbrigðisþjónustu og gervigreind í lífvísindum.
Efnt verður til viðskiptaþings af þessu tilefni í salarkynnum Vabamu-safnsins í Tallinn á morgun. Kristina Kallas, ráðherra menntamála og rannsókna, og Logi Már Einarsson opna þingið. Forseti Íslands og forseti Eistlands taka einnig þátt í dagskránni. Þau ræða um áskoranir á sviði gervigreindar og leiðir til að tryggja að hún nýtist almenningi og samfélögum til góðs.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“