Samtal um frið
4. maí 2026
Ljósmyndir: © VATICAN MEDIA.
Forseti fundar með Leó XIV páfa og Pietro Parolin kardínála.

Frá fundi forseta og Leó XIV páfa. Ljósmynd: © VATICAN MEDIA.


Samtal forseta Íslands og Leó XIV páfa stóð í tæpa klukkustund. Unnt er að lesa umfjöllun og sjá ljósmyndir frá fundi þeirra á vef páfastóls.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, átti í morgun einkafund með Leó XIV páfa í Vatíkaninu. Að því loknu fundaði hún ásamt íslenskum embættismönnum með Pietro Parolin kardínála, æðsta embættismanni páfastóls.
Á þessum fundum var meðal annars rætt um þróun mála á alþjóðavettvangi, sérstaklega vaxandi fjölda alvarlegra stríðsátaka víða um heim og nauðsyn þess að stemma stigu við þeim með samtali um frið.
Fleiri fréttir

26. nóvember 2026
Samstaða og kærleikur
Sameiginleg yfirlýsing forseta Íslands og biskups Íslands.
26. nóvember 2026
Samstaða og kærleikur

26. nóvember 2026
Þrekvirki unnið við krefjandi aðstæður
Forsetahjón senda ástvinum látinna sjómanna samúðarkveðjur.
26. nóvember 2026
Þrekvirki unnið við krefjandi aðstæður

25. nóvember 2026
Fjórir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum á Bessastöðum.
25. nóvember 2026
Fjórir nýir sendiherrar