„Skapandi hugsun er lykillinn að farsælli framtíð“
19. júní 2026
Ljósmynd: EFÍ.
Forseti flytur hátíðarávarp við útskrift Listaháskóla Íslands



„Ekki láta óttann við að mistakast verða sterkari en löngunina til að skapa,“ sagði forseti meðal annars í hátíðarávarpi sínu við útskrift LHÍ. Ávarpið í heild er aðgengilegt hér á vefnum.
Sjá nánar.
Forseti flutti hátíðarávarp á útskriftarathöfn Listaháskóla Íslands (LHÍ) sem fram fór í Hörpu. Hún lagði þar áherslu á mikilvægt hlutverk skapandi einstaklinga við mótun framtíðarinnar.
Að þessu sinni útskrifuðust tæplega 200 nemendur frá LHÍ úr sjö deildum. Útskriftarathöfnin hófst á ávarpi Kristínar Eysteinsdóttur, rektors LHÍ, en einnig tóku fulltrúar útskriftarnemenda úr hverri deild til máls. Forseti flutti ávarp sitt eftir að nemendur höfðu tekið við prófskírteinum og sagði þá meðal annars:
„Skapandi hugsun er lykillinn að farsælli framtíð. Á bak við allar stórar samfélagsbreytingar búa áhrifaríkar hugmyndir um það hver við erum, hvað við getum og hvert við stefnum. Það er oftar en ekki listafólk – þar með talið myndlistamenn, sviðslistafólk, hönnuðir, rithöfundar, tónlistarfólk, kvikmyndagerðarfólk og arkitektar – sem gerir okkur kleift að sjá heiminn og tækifærin með nýjum hætti. Þið gerið okkur kleift að ímynda okkur það sem enn er ekki orðið.
Sköpun er ekki munaður. Sköpun er og verður forsenda framfara. Að mínu mati er mikilvægasta spurning framtíðarinnar ekki hvað tæknin geti gert heldur hvers konar samfélag við viljum byggja upp með hjálp hennar. Þar hafið þið mikilvægu hlutverki að gegna.
Þið hafið verið þjálfuð í því að spyrja erfiðra spurninga, leysa flókin viðfangsefni og sjá tengingar og lausnir sem ekki liggja í augum uppi. Þið hafið kjark til að efast um hið sjálfgefna og þor til að skapa eitthvað úr engu. Þetta eru hæfileikar sem samfélagið þarf á að halda, nú fremur en nokkru sinni fyrr. Við þurfum fólk sem getur hannað ný verk og gripi – til að mynda myndlist, sviðsverk, klæðnað, bækur og byggingar. En við þurfum ekki síður fólk sem getur hannað betri samtöl, sterkari samfélög og nýjar leiðir til að lifa saman á þessari jörð.“
Fleiri fréttir

19. júní 2026
Opinber heimsókn til Færeyja
Forsetahjón halda til Þórshafnar mánudaginn 22. júní.
19. júní 2026
Opinber heimsókn til Færeyja

18. júní 2026
Kvennatrommusveit á Bessastöðum
Stiklur úr dagbók forseta
18. júní 2026
Kvennatrommusveit á Bessastöðum

17. júní 2026
Fjórtán Íslendingar heiðraðir á Bessastöðum
Forseti sæmir 14 einstaklinga heiðursmerki fálkaorðunnar.
17. júní 2026
Fjórtán Íslendingar heiðraðir á Bessastöðum