Snorri Dagur hlýtur Ásgeirsbikarinn
29. mars 2026
Ljósmynd: EFÍ.
Forseti afhendir forsetabikar fyrir sundafrek.

Forseti ásamt sundmanninum Snorra Degi Einarssyni og Birni Sigurðssyni, formanni Sundsambands Íslands.
Forseti afhenti Ásgeirsbikarinn í lok Íslandsmeistaramótsins í sundi sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði um liðna helgi. Bikarinn hlaut Snorri Dagur Einarsson.
Ásgeirsbikarinn er nefndur eftir Ásgeiri Ásgeirssyni, forseta Íslands 1952-1968. Hann var mikill sundgarpur og sótti gömlu laugarnar í Laugardal reglulega í sinni forsetatíð. Bikarinn, sem var gefinn og veittur í fyrsta sinn af Ólafi Ragnari Grímssyni árið 2008, hlýtur sá keppandi sem vinnur besta afrekið á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug samkvæmt stigatöflu World Aquitics.
Snorri Dagur fékk bikarinn fyrir 100 metra bringusund sem skilaði honum 813 stigum. Þess má geta að þetta er þriðja árið í röð sem hann hampar bikarnum.
Fleiri fréttir

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“