Veljum samtalið
8. september 2026
Ljósmyndir: Eyþór Árnason.
Forseti setur Alþingi.

Frá guðþjónustu sem fram fór í Dómkirkjunni fyrir þingsetningu.




Ávarp forseta við setningu Alþingis er aðgengilegt í heild hér á vefnum.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, setti Alþingi við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu. Í ávarpi sínu ræddi hún meðal annars um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst síðastliðinn og mikilvægi heilbrigðra skoðanaskipta. „Lýðræðislegt samfélag verður ekki til af sjálfu sér,“ sagði hún meðal annars og bætti við:
„Við mótum það á hverjum degi, með því hvernig við tölum saman, hvernig við hlustum og hvernig við berum virðingu fyrir þeim sem sjá framtíðina með öðrum augum en við sjálf. Við getum valið að gera betur, að láta ekki hörðustu raddirnar setja tóninn í samfélaginu.
Við höfum stundum tilhneigingu til að halda að það sem sameini þjóð sé það að vera sammála. En saga Íslands segir aðra sögu. Við höfum aldrei verið sammála um allt. Við höfum tekist á um stór mál frá stofnun lýðveldisins og raunar allt frá stofnun Alþingis. En þegar okkur hefur tekist best til höfum við ekki látið ágreining yfirgnæfa það sem sameinar okkur.“
Síðar í ávarpinu ræddi hún einnig um Samtal þjóðarinnar, sem áformað er að efna til um land allt laugardaginn 10. október næstkomandi:
„Ég lít svo á að það sé meðal mikilvægustu verkefna forsetaembættisins að skapa rými þar sem fólk getur komið saman og hlustað hvert á annað. Nú vinnur breiður hópur fólks að undirbúningi Samtals þjóðarinnar í október. Tilgangurinn er ekki að verða sammála um allt. Skoðanaskipti eiga heima í lýðræði og geta raunar verið kveikja samtalsins. Ungt fólk mun leiða samtölin í framhaldsskólum landsins og ólíkar kynslóðir setjast við sama borð; ekki til að sannfæra hvert annað heldur til að hlusta og skilja, horfa til alls þess sem sameinar.“
Undir lok ávarpsins beindi forseti orðum sínum bæði til þings og þjóðar:
„Veljum samtalið. Veljum virðinguna. Veljum hvert annað.
Mótum samfélag þar sem fólk getur tekist á um stór mál án þess að glata hverju öðru. Við megum velja ólíkar leiðir en eigum áfram sömu heimahöfn: Ísland.“
Í kjölfarið óskaði forseti Alþingi og þingmönnum allra heilla og bað þá að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“