Velsæld á tímum gervigreindar
16. apríl 2026
Ljósmyndir: Pétur Fjeldsted.
Forseti og Jesper Brodin ræða leiðtogahæfni og gervigreind á Velsældarþingi.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Jesper Brodin, stjórnarformaður The B Team og fyrrverandi forstjóri IKEA ræddu um leiðtogahæfni og velsæld á tímum gervigreindar.



Forseti ræddi um leiðtogahæfni og velsæld við Jesper Brodin á Velsældarþingi 2026 sem fram fer í Hörpu. Brodin er fyrrverandi forstjóri IKEA og stjórnarformaður í almannaheillasamtökunum The B Team. Í samtali þeirra var hlutverk leiðtoga á tímum hraðra samfélagsbreytinga og gervigreindar í brennidepli. Þau voru sammála um að áskoranir á borð við loftslagsbreytingar, aukinn ójöfnuð og óvissa í alþjóðamálum kölluðu á nýja nálgun í stefnumótun og forystu.
Á Velsældarþinginu, sem fór nú fram í fjórða skipti hérlendis, hittast leiðtogar, stjórnmálafólk, fræðimenn, fulltrúar atvinnulífs og stofnana og fjalla um ýmis brýn viðfangsefni samtímans. Sérstök áhersla er lögð á hagnýtar lausnir og stefnumótun sem styðja við velsæld. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur verið verndari þingsins frá því að hún tók við embætti.
Brodin lagði í máli sínu áherslu á að leiðtogar fyrirtækja, þar með talið tæknifyrirtækja, þyrftu að tileinka sér ný vinnubrögð og axla ábyrgð á hnattrænum áhrifum viðkomandi starfsemi.
„Við verðum að endurskilgreina velgengni. Hún snýst ekki um að vinna gróðakapphlaupið og skjóta öðrum ref fyrir rass. Það þarf enginn að bera skarðan hlut frá borði. Reynslan hefur leitt í ljós að arðsemi og jákvæð samfélags- og umhverfisáhrif haldast í hendur“, sagði Brodin meðal annars. „Við þurfum hugrakka leiðtoga sem þora að vera bjartsýn, setja sér háleit markmið og ráðast í markvissar aðgerðir til að breyta heiminum til hins betra“.
Forseti og Brodin ræddu einkum víðtæk áhrif gervigreindar á samfélagið og hvernig væri hægt að skapa henni eðlilegan lagalegan og siðferðilegan ramma. Þau sammæltust um að þetta sé verkefni sem krefst samtals, samstöðu og skýrrar framtíðarsýnar til að tryggja að tæknin þjóni mennskunni en ekki öfugt. Ungir leiðtogar tóku einnig þátt í samtalinu þar sem þau deildu sinni sýn þegar kemur að gervigreind, heilsu, lífsgæðum, jöfnuði og sjálfbærni.
Upptaka frá samtali forseta og Jesper Brodin á Velsældarþingi.
Skoða
Fleiri fréttir

8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.
8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“

6. júlí 2026
Forseti tekur sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind
Vinnuferð forseta til Genf í Sviss.
6. júlí 2026
Forseti tekur sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind

2. júlí 2026
Hádegisverður með Alberti fursta af Mónakó
Stiklur úr dagbók forseta.
2. júlí 2026
Hádegisverður með Alberti fursta af Mónakó