„Kyndilbera hreinnar orku“
19. mars 2026
Ljósmyndir: Elísabet Blöndal.
Forseti tekur þátt í sófaspjalli á KÍÓ-deginum.

Forseti í sófaspjalli við Mörtu Rós Karlsdóttur, framkvæmdastýru Baseload Power á Íslandi.



Forseti tók þátt í sófaspjalli við Mörtu Rós Karlsdóttur á KÍÓ-deginum sem fram fór á Edition-hótelinu í Reykjavík. Dagurinn er skipulagður ár hvert af félaginu Konur í orkumálum en tilgangur þess er meðal annars að auka áhrif kvenna í orku- og veitugeiranum á Íslandi og styrkja tengsl þeirra á milli.
Í samtali þeirra Mörtu Rósar áréttaði forseti að Ísland nyti sérstöðu á alþjóðavettvangi fyrir framsækna nýtingu hreinnar orku og framúrskarandi árangur á sviði jafnréttismála. Hún sagði þessa þætti grunnstoðir íslenskrar velferðar og jafnframt forsendur sjálfbærni, öryggis og friðar í heiminum.
Forseti ræddi einnig mikilvægi samvinnu og sagði flóknar áskoranir líðandi stundar kalla á náið samstarf stjórnvalda, atvinnulífs, fræðasamfélagsins og almennings. Að lokum hvatti forseti konurnar í salnum til að vera „kyndilbera hreinnar orku, jafnréttis og friðar“ og að láta að sér kveða sem víðast.
Á vef Kvenna í orkumálum er fróðleikur um félagið og KÍO daginn.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“

12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu
Hópur leiðtoga tekur þátt í samtali í Höfða.
12. október 2026
Ákall um ábyrga forystu

11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“
Forseti tekur þátt í lokaviðburði Samtals í Hörpu.
11. október 2026
„Gerum heiminn að griðastað“