„Verið með, takið þátt, spyrjið spurninga“
1. október 2026
Ljósmyndir: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
Forseti flytur opnunarávarp á málþingi Forvarnardagsins.

„Ég trúi því að öflugasta forvörnin sem við eigum kost á séu einfaldlega góð tengsl við aðra,“ sagði forseti meðal annars í ávarpi sínu í Verzlunarskólanum.


Upptaka frá málþingi Forvarnardagsins 2026 er aðgengileg á YouTube.
Sjá nánar.
Forseti flutti opnunarávarp í Verzlunarskóla Íslands (VÍ) þegar Forvarnardagurinn 2026 var settur. Ávarpið var hluti af málþinginu Samtal og samvera en meðal annarra sem þar tóku til máls voru Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri VÍ, María Heimisdóttir landlæknir og Magnús Geir Björgvinsson og Edda Sól Óladóttir nemendur í VÍ. Fundarstjóri var Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis.
Í ávarpi sínu rifjaði forseti upp sín eigin námsár í VÍ og lagði áherslu á að þátttaka sín í félagslífinu og margháttuð samskipti við aðra nemendur hefðu verið stór og mikilvægur hluti námsins. Hún tengdi þessa reynslu við markmið Forvarnardagsins:
„Þegar við tölum um forvarnir hugsum við gjarnan um allt það sem við viljum koma í veg fyrir. En mig langar frekar að tala um það sem við viljum móta og byggja upp: Vináttu, traust, samkennd, tilgang, samfélag þar sem við sjáum hvert annað, vinnum saman – og enginn þarf að standa einn. Ég trúi því að öflugasta forvörnin sem við eigum kost á séu einfaldlega góð tengsl við aðra.”
Í framhaldi hvatti forseti framhaldsskólanema og alla aðra landsmenn til þátttöku í verkefninu Samtal sem fram fer laugardaginn 10. október næstkomandi. Um það sagði hún meðal annars:
„Þegar ég hitti ungt fólk heyri ég að það er að spyrja sig stórra spurninga: Til hvers er ég að mennta mig ef störfin verða allt önnur, eða jafnvel ekki til? Hvernig á ég að fóta mig í heimi sem breytist svona hratt? Í hvernig samfélagi vil ég starfa og ala upp börn?
Ég held að við fullorðna fólkið gerum stundum þau mistök að halda að okkar hlutverk sé að hafa öll svörin. Ég er ekki sammála því. Við þurfum nefnilega að finna svörin saman – þið sem eruð ung og við hin sem erum eldri. Og þess vegna langar mig að biðja ykkur um hjálp.
Nú í október ætlum við að efna til Samtals um allt land. Ungt fólk verður þar í lykilhlutverki – en við viljum fá ólíkar kynslóðir saman að borðinu. Og við ætlum að spyrja einnar stórrar spurningar: Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Fyrir fjörutíu árum settust leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna niður hér í Reykjavík. Á þeim tíma óttaðist heimurinn kjarnorkustríð. Þeir Reagan og Gorbachev leystu ekki allt á fundi sínum í Höfða, en þeir töluðu saman. Þeir hlustuðu hvor á annan. Þeir leituðu leiða áfram. Og eftir á, þegar fólk reyndi að meta áhrif þessa samtals, töldu mörg hann hafa verið upphafið af endalokum kalda stríðsins.
Núna, fjörutíu árum síðar, þurfum við aftur að minna okkur á kraftinn sem felst í raunverulegu samtali. Slíkt samtal hefst ekki endilega hjá ríkjaleiðtogum eða ríkisstjórnum. Það getur byrjað hér: Þegar við leggjum símann frá okkur og horfum hvert á annað. Þegar við spyrjum: Hvernig hefurðu það – í alvöru? Þegar við hlustum á einhvern sem hugsar öðruvísi en við. Þegar við tökum eftir þeim sem stendur aðeins til hliðar. Og þegar við ákveðum að vera ekki bara áhorfendur að því sem gerist í samfélaginu – heldur virkir þátttakendur í því.“
Í niðurlagi ávarpsins sagði forseti síðan:
„Þegar ég sat hér á skólabekk á ykkar aldri hafði ég auðvitað ekki hugmynd um hvert lífið myndi leiða mig. En eitt vissi ég: Ég vildi vera með. Og kannski er það þetta sem mig langar til að leggja áherslu á hér í dag.
Verið með.
Takið þátt.
Spyrjið spurninga.
Komið með hugmyndir.
Hlustið hvert á annað.
Takið þá inn í hópinn sem standa kannski annars til hliðar.
Ég er viss um að gamli skólinn minn og aðrir framhaldsskólar landsins verði áfram í fararbroddi í því að byggja upp góð tengsl á milli ólíks fólks og vona innilega að þið mætið öll til leiks í Samtal laugardaginn 10. október næstkomandi.”
Forvarnardagurinn er nú haldinn í 21. skipti en verkefninu var ýtt úr vör 2006 að frumkvæði þáverandi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Embætti landlæknis fer með verkefnastjórn en samstarfsaðilar eru embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greining, Planet Youth, Samfés, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samstarf félagasamtaka í forvörnum, Ríkislögreglustjóri og Heimili og skóli.
Skráning og frekari upplýsingar um verkefnið Samtal er á vefnum talasaman.is
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar

12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“
Samtal kvenleiðtoga á Imagine Forum.
12. október 2026
„Ímyndunarafl er dásamlegt orð“